leigubifreiðaakstur.
Frú forseti. Það eru áhugaverðar umræður sem eiga sér hér stað um þetta leigubílafrumvarp og ég vil aðeins bregðast við því að hér var farið að líkja leigubílamarkaðnum við sjávarútveginn. Þá vil ég minna á að það er einmitt það ástand sem við vorum að reyna að koma okkur út úr, að lögin voru með þeim hætti að það voru aðilar sem fengu leyfi til að keyra leigubíl og það var mjög takmarkað af hálfu hins opinbera hversu margir mættu keyra leigubíla á höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesskaga eða einhvers staðar á landsbyggðinni. Það var meira að segja þannig að þessi leyfi erfðust, svo mikill var fáránleikinn í nútímasamfélagi á því regluverki sem við bjuggum við. Þá man ég að var til flokkur sem heitir enn Viðreisn sem barðist svo gegn þessum lögum eins og þau voru og talaði fyrir frelsinu. Hér man ég eftir þingsályktunartillögu frá þingmönnum Viðreisnar þar sem lagt var til að auka frelsi á leigubílamarkaði. Ég minnist þess að þáverandi hv. þm. Hanna Katrín Friðriksson, sem nú er hæstv. atvinnuvegaráðherra, hafi óskað eftir sérstakri umræðu við hæstv. samgönguráðherra á þeim tíma einmitt um þetta. Ég minnist þess að pallarnir hafi verið fullir af leigubílstjórum sem vildu ekkert mikið með þessa umræðu hafa, aðilum sem vildu ekki að frelsi væri aukið á leigubílamarkaði.
Virðulegur forseti. Ég tek undir það sem hv. þingmaður Jens Garðar Helgason sagði hér áðan varðandi frelsið, mjög góð frelsisræða og brýning, og maður áttar sig betur og betur á því hversu mikilvægt er að brýna þetta fyrir okkur mjög reglulega því hér ratar inn hvert frumvarpið á fætur öðru þar sem á bara að taka pínupínupínupons en þegar þetta pínupínupínupons kemur saman þá er verið að vega að frelsinu. Ég ætla samt sem áður, virðulegur forseti, að líta á leigubíla sem hluta af samgöngukerfinu okkar. Því vil ég horfa á frelsi einstaklingsins til að geta valið sér hvaða leið hann nýti til samgangna, hvort sem það sé fjölskyldubíllinn, strætisvagnar, Hopphjól, leigubifreiðar, hjól og allt þar á milli. Ég held að það sé ofboðslega mikilvægt fyrir borgarsamfélagið okkar hér á höfuðborgarsvæðinu að þessir samgöngumátar séu allir virkir og geti unnið saman. Þess vegna er mikilvægt að minna á það, af því að það virðist mjög hafa gleymst í þessari umræðu, hvernig ástandið var hér áður en lögunum var breytt. Þá var ófremdarástand á leigubílamarkaði. Ég skil mjög vel hversu erfitt getur verið að bregðast við því að eftirspurnin á virkum dögum yfir daginn sjálfan er mjög takmörkuð og svo kemur alveg ofboðslega mikil eftirspurn eftir leigubifreiðum á kvöldin og næturnar um helgar. Þess vegna var ástandið þannig að fjöldi fólks hafði atvinnu af því að skutla og fjöldi fólks notaði þá þjónustu. Hún var í grunninn ólögleg og ekkert eftirlitsverk í kringum það. Það er auðvitað ekki ný þjónusta. Þótt það væri hægt að fara að bjóða hana á Facebook eða einhverju slíku þá þekkjum við þetta í gegnum tíðina og auðvitað var það og hefur alltaf verið svoleiðis að það er fólk að borga einhverjum fyrir að skutla sér hingað og þangað, eitthvað sem almennt hefur ekki verið talið að löggjafinn þurfi að skipta sér verulega af. En ástandið var með þeim hætti á þessum tíma að það var algjörlega nauðsynlegt að löggjafinn stigi inn, fyrir nú utan það að eftirlitsstofnun ESA hafði gert verulegar athugasemdir við regluverkið okkar. Ég er nú sú sem segir hér að það er íslenski löggjafinn sem á að setja lög á Íslandi en mér finnst líka EES-samningurinn alveg gríðarlega mikilvægur og ég vil standa vörð um hann. Þess vegna hef ég tilhneigingu til að hlusta þegar eftirlitsstofnunin gerir athugasemdir þó að það sé þeirra sem hér sitja og eru kosnir á Alþingi Íslendinga að taka ákvörðun um regluverkið. Að því sögðu vil ég ítreka að hér eru fögur fyrirheit í þessu frumvarpi.
Virðulegur forseti. Ég sé ekki hæstv. ráðherra, ég vona að hann sé ekki farinn úr salnum og sé hér að fylgjast með umræðu um þetta mikilvæga mál sitt. Mér fannst hæstv. ráðherra í rauninni halda því hér fram í púlti að glæpamenn væru að keyra leigubíla á Íslandi í dag. Hér var því haldið fram að ungar stúlkur treystu sér ekki til að taka leigubíl, treystu sér ekki til að gefa upp heimilisfang staðarins sem þær væru að fara á. Það er auðvitað ofboðslega alvarlegt ástand ef sú er staðan og ég velti fyrir mér: Telur ráðherra í ríkisstjórn Íslands að þetta frumvarp lagi það? Fyrirgefið, virðulegur forseti, ég sé ekki rökin fyrir því. Mér finnst hæstv. ráðherra ekki hafa sýnt fram á það, ef ástandið er eins alvarlegt og hann hefur haldið hér fram í púlti Alþingis, að hann sé að vinna eitthvað í því máli. Hér er búið að taka ítrekað fram í umræðunum, og hæstv. ráðherra viðurkennir það sjálfur, að reglugerðarheimildirnar í gildandi lögum eru gígantískar en á níu mánuðum hefur hæstv. ráðherra, sem ber ábyrgð á þessum málaflokki og lýsir því hér í púlti Alþingis hversu alvarlegt ástandið er, ekki brugðist við með reglugerð. Hann kemur svo hingað inn í þingið og segir: Hér er einhver fyrsti áfangi, varðar einhverja stöðvaskyldu og einhver minni háttar mál, það á að laga málið en nei, ég er samt alveg á því að þetta lagi ekki allt því að það kemur annar áfangi og hann kemur líklega ekki fyrr en næsta haust. Er hægt að kalla þetta einhverja verkstjórn?
Virðulegur forseti. Í mínum huga er þetta miklu frekar einhvers heigulsháttur um að pakka einhverju saman í sellófan og reyna að selja fólki að það sé verið að leysa hér alvarleg vandamál þegar raunin er að svo er ekki. Ég hlýt líka að endurtaka þær spurningar sem hafa komið fram í umræðunni. Ef ég man rétt var það hv. þm. Ingibjörg Davíðsdóttir sem spurði hreint út hér í andsvari við hæstv. ráðherra áðan hvað hann hygðist gera varðandi þessi próf. Hér hefur því verið haldið fram statt og stöðugt í ræðustóli Alþingis að það hafi verið svindlað markvisst á þessum prófum og ég hef ekki skilið það öðruvísi en hæstv. ráðherra hafi bara tekið undir það eða jafnframt haldið því fram sjálfur, og hver eru viðbrögðin við því? Hvað á að gera í því ef einhver er með réttindi þarna úti sem hann hefur fengið á fölskum forsendum? Nei, hæstv. ráðherra kemur með eitthvert frumvarp um eitthvað allt annað. Það er ekkert verið að bregðast við því. Nú veit ég það ekki fyrir víst hvort það var svindlað á þessum prófum en sögurnar hafa svo sannarlega sagt það sem og fréttaflutningur og ég get ekki betur séð en að hæstv. ráðherra taki undir það. Hvar er ábyrgð hæstv. ráðherra á þessum málaflokki? Ég segi nú ekki annað. Þess vegna hlýt ég að taka undir þessar fyrirspurnir hér og spyrja: Hvernig ætlar hæstv. ráðherra að bregðast við þessari stöðu? Ef einhver hefur fengið réttindi á fölskum forsendum þá væri í mínum huga eðlilegast í heimi að afturkalla þessi réttindi.
En þá komum við að því sem verið hefur mikið til umræðu hér og það er varðandi íslenskukunnáttu leigubílstjóra. Ég ætla, virðulegur forseti, að fá að segja að mér finnst það umhugsunarvert, þótt ekki sé meira sagt, ef við, íslenskt samfélag, ætlum að krefjast þess að allir leigubílstjórar á Íslandi kunni góða íslensku. Af hverju segi ég það? Nú er mér mjög annt um tungumálið og mér er mjög annt um að þeir sem hingað flytja leggi sig fram við að læra íslensku. Mér er líka mjög annt um að stjórnvöld geri allt sem í þeirra valdi stendur til að aðstoða þá sem hingað flytja í að læra íslensku, sem virðist vera þvert á það sem hæstv. ríkisstjórn er að gera þessa dagana með því að draga úr fjárveitingum til íslenskunáms. En mér til að mynda, virðulegur forseti, finnst mjög mikilvægt á leikskólum landsins, þar sem börnin okkar eru á máltökualdri, að starfsfólkið þar tali íslensku. Mér myndi finnast það til mikilla bóta en við vitum að sú er staðan ekki. Öll börn sem eru á leikskóla á Íslandi þurfa og eiga að læra íslensku. Hvort sem það er þeirra móðurmál sem talað er á heimilinu eður ei þá er mikilvægt fyrir þessi börn að heyra góða íslensku og að við þau sé talað á íslensku og þau fái tækifæri til að tjá sig á íslensku.
Nú veit ég ekki, virðulegur forseti, en ég var að reyna að fletta því upp hvort við vissum hversu stórt hlutfall farþega í leigubílum væru Íslendingar. Ég ímynda mér að það sé ekkert rosalega stórt hlutfall því að við Íslendingar elskum jú fjölskyldubílinn okkar og notum hann ef kostur gefst og leigubílar eru mjög spari hjá flestum Íslendingum þannig að hér eins og víðast annars staðar þá eru það auðvitað fyrst og fremst ferðamenn sem nýta leigubíla. Þess vegna má líka alveg velta því fyrir sér hvort það sé þá ekki mikilvægt að þeir kunni þá ensku sem er nú almennt það tungumál sem er hvað útbreiddast. Það má ekki skilja orð mín með þeim hætti að mér finnist ekki einmitt mikilvægt að leigubílstjórar læri íslensku. En mér finnst það umhugsunarefni ef það á að vera sú atvinnugrein þar sem við ætlum að byrja að gera sérstaka kröfu um það að kunna íslensku. Mér finnst það mjög sérstakt í ljósi þess að ég hygg að það kunni oft að vera enn mikilvægara að viðkomandi þjónustuveitendur kunni enska tungu.
Virðulegur forseti. Ég ætla líka að geta þess og ég er algerlega sannfærð um að það er mikilvægt að horfa til þess að það eru líka margir viðkvæmir hópar sem nýta sér þjónustu leigubíla. Það kunna að vera fatlaðir einstaklingar, blindir hafa lengi haft réttindi til að nýta sér leigubíla sem ferðaþjónustu fatlaðra og ég held að það sé mjög mikilvægt að þeir sem sinni þeirri viðkvæmu þjónustu og þeim viðkvæma þjónustuhóp séu vel til þess hæfir. Það kann að vera stundum að það krefjist íslenskukunnáttu eða bara almennrar þekkingar á íslensku mannlífi og að geta tekist á við þær áskoranir sem upp kunna að koma í þjónustu við mismunandi viðskiptahópa, þannig að aftur, virðulegur forseti, ég ætla ekki segja að mér finnist ekki mikilvægt að leigubílstjórar læri íslensku. Ég held að það sé það en mér fyndist það ofboðslega sérstakt ef það væri sú atvinnugrein þar sem við ætluðum að byrja að gera kröfu um að fólk væri fullmælandi á íslensku. Mér finnst önnur svið mannlífsins þess mikilvægari að þar sé góð íslenskukunnátta.
Virðulegur forseti. Akkúrat núna er enginn þingmaður Viðreisnar í salnum en hv. þm. Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar, hefur verið hér og tekið lítillega þátt í umræðunni. Ég ætla að vona að hv. þingmaður fari líka í ræðu því það er áberandi í þessari umræðu, bæði núna og líka síðast þegar þetta frumvarp var tekið fyrir, að þingmenn Viðreisnar hafa vart sést í umræðunni. Hér hefur hæstv. ráðherra borið málið upp í 1. umræðu og notið stuðnings frá sínum flokksmönnum. Þingmenn Miðflokksins, sem lengi hafa haft sterkar skoðanir á þessu, hafa svo sannarlega tjáð þær og tekið þátt í umræðunni og svo hafa þingmenn Sjálfstæðisflokksins útskýrt sín sjónarmið og sínar skoðanir er lúta að þessu með frelsið en aðrir hafa verið mjög fjarverandi í þessari umræðu og ég kalla sérstaklega eftir þátttöku frá þingmönnum Viðreisnar. Það væri gaman að fá hv. þm. Jón Gnarr hér upp sem fór nú í ræðu fyrr í dag og vildi útskýra muninn á hægri og vinstri, sem ég þekki býsna vel. Ég verð reyndar að segja að ég veit að hv. þingmaður var að reyna að breyta nafninu á flokknum sínum og vildi að flokkurinn héti Viðreisn — frjálslyndir demókratar. Sú breytingartillaga var felld og ég kann að lesa ýmislegt í það, m.a. það að Viðreisn sé bara ekkert svo frjálslyndur flokkur enn þá. Alla vega heyrum við lítið af því hér í þessum sal.
Virðulegur forseti. Ég hvet hv. umhverfis- og samgöngunefnd til að fara vel yfir þetta — það var eitt annað sem ég gleymdi að nefna og bið þau um að skoða það sérstaklega og það varðar athugasemdir og umræðu um framtíðina á þessum markaði, við erum þegar farin að sjá inn í tækniþróunina og þetta með farveiturnar, hvort þessi breyting á lögunum sé að útiloka með einhverjum hætti farveitur í þessu máli. Þá er ég að vísa í Hopp sem er eina farveitan sem við þekkjum hér á markaðnum í dag, alla vega enn sem komið er, þannig að ég vænti þess að þingmenn í þessari ágætu nefnd skoði þann lið líka sérstaklega.