leigubifreiðaakstur.
Frú forseti. Fyrst langar mig að taka undir með hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur hvað varðar mikilvægi starfsmanna leikskóla sem starfa með börnum sem eru á því æviskeiði þegar málþroskinn er hvað mestur og næmið er hvað mest. Mig langar hins vegar að nefna hér aðeins, vegna efnistaka hv. þingmanns í sinni ræðu, að spyrja: Efast hv. þingmaður eitthvað um að það hafi átt sér stað svindl á ákveðnu tímabili? Er einhver efi hjá hv. þingmanni hvað það varðar? Og telur hv. þingmaður ekki að lágmarksskilningur og geta til að tjá sig á íslensku sé öryggisatriði fyrir þá farþega sem sannarlega eru íslenskir og eru að nýta sér þjónustuna? Við getum nefnt fatlaða, við getum nefnt aldrað fólk og fleiri. Telur hv. þingmaður ekki að þetta sé öryggisatriði? Svo velti ég fyrir mér þessum ótta við að gera bara kröfur og þar með er ég ekki að gera minna úr kröfum á aðrar stéttir, nú erum við bara að fjalla um þessa stétt, þess vegna hóf ég mál mitt á því að taka sérstaklega undir með hv. þingmanni hvað varðar starfsfólk leikskóla. Ég held raunar að það ætti að vera fyrir grunnskóla líka, því það er mikilvægt bæði fyrir börn fædd á Íslandi og ekki síður börn sem eru að koma annars staðar frá og eru farin að læra í okkar íslenska menntakerfi, að þau hafi góða íslensku í sínu nærumhverfi til að geta tekið til sín rétta íslensku. En þetta voru spurningarnar, frú forseti.