leigubifreiðaakstur.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir svarið. Ég reyndar hagaði orðum mínum hvorki í andsvarinu né í ræðu sem ég hélt hér áðan eða í andsvörum við hæstv. ráðherra þar á undan á þá leið að þeir yrðu að vera fulltalandi. Ég notaði það orðalag að þeir hefðu lágmarksfærni í skilningi og því að geta tjáð sig á íslensku. Ég tel það vera öryggisatriði. Það var spurningin, þannig að þetta var lipurlega út úr snúið hjá hv. þingmanni frá þessum spurningum. Varðandi svindlið þá heyrist mér hv. þingmaður vera að kalla eftir því að við notum orðið meint svindl vegna þess að það liggi ekki fyrir einhverjar sannanir. Hv. þingmaður talar um að hún hafi heyrt sögur og lesið fréttir. Í þeim fréttum hefur m.a. komið fram játun frá aðila sem segist hafa verið sá aðili sem var að senda svörin við spurningunum. Það er búið að birta þá játun í fréttum.
En að öðru. Næsta spurning gæti verið á þá leið, af því að hv. þingmaður fór að tala um leigubílaferðir sínar þegar hún heimsækir frændur okkar Dani og er augljóslega betur stödd í dönsku en sá sem hér talar: Telur hv. þingmaður að ef hún tæki leigubíl í segjum bara Frakklandi, og til að vera enn þá ýktari til að koma hugmyndafræðinni á framfæri, þá get ég nefnt Sádi-Arabíu, þá kæmist hv. þingmaður upp með að tala þar dönsku, íslensku eða önnur minni mál? Ég hygg að ég viti svarið en vil gjarnan heyra það frá hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur.