leigubifreiðaakstur.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir andsvarið. Ef við höldum okkur aðeins við tungumál þá er ég ekkert mótfallin því að það sé einhver lágmarkskunnátta. Ég held reyndar að það sé mikilvægt að fólk sem starfar á íslenskum vinnumarkaði og er hingað komið til þess að búa og starfa leggi sig fram og fái við það aðstoð að læra í það minnsta grundvallaratriði í íslensku og helst enn meira. En ég var einmitt að vísa líka í enskuna, ekki síst vegna þess að þegar ég kem til Frakklands og kann enga frönsku er fyrir mig mjög mikilvægt að ég geti mögulega talað ensku. Ég hygg að það sé oft á tíðum það tungumál sem skipti hvað mestu máli, alla vega hér í vestrænum heimi.
Aftur varðandi þessi próf og svindl. Nú stend ég hér uppi og tala með mjög varfærnum hætti. Ég hef ekki séð nákvæmlega þessa frétt sem hv. þingmaður var að vísa í, en hér er frumvarp sem á að auka öryggi og auðvelda eftirlit og það felst í því stöðvaskylda. Ef hér eru sannanir fyrir því að fólk hafi svindlað á prófum og það er ekki hægt að hafa eftirlit með því — stöðvaskylda mun ekki breyta neinu hvað það varðar — þá segi ég bara: Það er þá alger vanhæfni til að takast á við verkefni sem liggur frammi fyrir hæstv. ráðherra, hvort sem það sé á borði hæstv. ráðherra eða undirstofnana hans. En ef svindlað hefur verið á prófum og fólk hefur leyfi til að starfa á fölskum forsendum þá hlýtur hæstv. ráðherra að vilja bregðast við einmitt því.