157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[14:04]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Hér ræðum við um mál sem snýst um tiltekt. Það er verið að taka til eftir að Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn klúðruðu málum hér með breytingu á leigubílaleyfum. Afleiðingin er sú að það hefur skapast hætta fyrir farþega og orðsporsáhætta fyrir ferðaþjónustuna á Íslandi. Mér finnst svolítið einkennilegt að hlýða hér á hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur toga og teygja orð ráðherra á ýmsa vegu, jafnvel rangtúlka þau í stað þess að koma hingað upp, frú forseti, og þakka hæstv. ráðherra fyrir, þakka honum einfaldlega fyrir að vera að koma þessum málum í betra horf en verið hefur, vegna þess að þessar breytingar voru ekki til góðs. Ég held að það séu nær allir landsmenn sammála um það nema þá mögulega hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir. Það er ómögulegt á sama tíma og hún krefur hér þingmenn Viðreisnar svara um hver afstaða þeirra er — hún liggur auðvitað fyrir, það er búið að afgreiða þetta mál út úr ríkisstjórn — að þá er hún mjög óskýr og talar jafnvel um að það sé óviðurkvæmilegt að vekja athygli á því að það hafi verið misbrestur á þeim prófum sem voru framkvæmd og að ráðherrann sé með eitthvert óábyrgt tal þegar hann ræðir það sem er á allra vitorði og hefur gefið í skyn að hann ætlaði að koma þessum hlutum í lag. Ég vona, frú forseti, að hv. þingmaður komi hingað upp og biðjist bara afsökunar og segi frá því að hún muni greiða þessu góða máli götu í gegnum þingið í stað þess að vera að toga og teygja orð hæstv. ráðherra á ýmsa kanta með þeim afleiðingum að fólk áttar sig hvorki á afstöðu hv. þingmanns í málinu né Sjálfstæðisflokksins, (Forseti hringir.) sem kom þessum leigubílamálum í algjört óefni.