157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[14:06]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hv. þm. Sigurjón Þórðarson. Ég veit ekki hvað skal segja, sko, hlæja eða gráta, virðulegur forseti. Ég ætla ekki að biðjast afsökunar á því að vera þjóðkjörinn þingmaður og nota rétt minn til að tala í þessu ræðupúlti jafnvel þó að það sem ég kunni að segja fari fyrir brjóstið á hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni; jafnvel þó að það sé alveg ljóst að ég og hv. þm. Sigurjón Þórðarson séum ekki sammála í öllum málum; jafnvel þó að ljóst sé að Flokki fólksins, eftir að hann komst í ríkisstjórn, finnist óþægilegt og óþarfi að við hin sem erum kjörin til þings tjáum okkur og segjum okkar skoðun. Það hefur svo sannarlega komið fram í máli hv. þingmanns þar sem honum finnst eðlilegt að taka málfrelsi af þjóðkjörnum fulltrúum.

Virðulegur forseti. Ég ætla að reyna með einhverjum hætti að svara efnislega mjög ómálefnalegri spurningu sem hér var lögð fyrir mig, ef ég skil hana. Hér fer hv. þingmaður mikinn í því að þetta sé tiltektin. Það er aldeilis að spunameistarar þessarar ríkisstjórnar hafa náð að koma orðunum á. Það er alveg sama hvað þessi hæstv. ríkisstjórn er að gera, það er alltaf einhvers konar tiltekt. Það er þá tiltekt eftir mig sem hér stend og aðra sem voru í síðustu ríkisstjórn. Að hv. þingmanni finnist óeðlilegt að hér sé kallað eftir afstöðu Viðreisnar, hv. þingmaður var nú ekki á þingi — jú, hann var nú eitthvað á þingi sem varaþingmaður, en hér voru miklar umræður um leigubílana og það var einmitt flokkurinn Viðreisn sem kallaði eftir því að þessum lögum yrði breytt og sagði meira að segja þegar við vorum að breyta lögunum og það væri jafnvel ekki nógu langt gengið. Það hlýtur því að vera ósköp eðlilegt að við sem hér stöndum og höfum minni til þess hvernig umræðan var spyrjum hæstv. ráðherra og hv. þingmenn Viðreisnar: Hefur afstaða ykkar breyst? (Forseti hringir.) Því það er orðið mjög vinsælt í þessari ríkisstjórn að fólk breyti um afstöðu og ég ætla ekki að gera athugasemd við það (Forseti hringir.) en það er líka allt í lagi að fólk sé þá bara heiðarlegt með það þegar það breytir um afstöðu.

(Forseti (EÁs): Ég bið hv. þingmenn um að virða ræðutíma.)