157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[14:09]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Það kom pínulítið á óvart hvað hv. þingmaður tók þessum andmælum mínum eða andsvari illa. Auðvitað var ég ekki að ýja að því að taka af henni málfrelsi, alls ekki. Ég var einfaldlega að benda á það að á sama tíma og hún væri að krefja Viðreisn um að koma upp í ræðustól og segja frá afstöðu sinni til þessa máls, sem vissulega hefur komið fram því þetta mál er afgreitt úr ríkisstjórn, þá er ómögulegt að átta sig á afstöðu þingmannsins sjálfs. Hér er ýmislegt tínt til og farið í nokkra hringi um málið og jafnvel talið óviðurkvæmilegt, ef ég skil hv. þm. Sjálfstæðisflokksins og kemur nokkuð á óvart að það skuli koma úr þeirri átt, frá Sjálfstæðisflokknum, að telja jafnvel óviðurkvæmilegt að gera kröfu um það að þeir sem eru í sjálfstæðum rekstri, þjónustustörfum, og fara jafnvel með aldraða og fatlaða hér um bæinn þveran og endilangan geti bjargað sér á íslensku. Mér finnst það vera svolítið sérstakt að þetta komi úr Sjálfstæðisflokknum sem einhvern tímann taldi sig vera þjóðlegan flokk, að það megi jafnvel skilja það svona á milli línanna að þetta sé eitthvað sem er óviðurkvæmilegt. Ég vil taka það algerlega skýrt fram að hér er leigubílamarkaður sem er í ákveðnum vanda og við í Flokki fólksins og ríkisstjórnin og fleiri flokkar viljum taka á þessu. Mér finnst að það ætti að vera forgangsverkefni, í stað þess að deila um hlutina og toga og teygja orð, að standa saman um það að þessi markaður fari í betra horf, því það er svo sannarlega brestur á því hvað varðar öryggi farþega og orðsporsáhætta fyrir ferðaþjónustuna í landinu. Þess vegna eigum við að greiða þessu máli leið í gegnum þingið.