leigubifreiðaakstur.
Virðulegi forseti. Ég sit í umhverfis- og samgöngunefnd og ég vil þakka ráðherra fyrir að koma fram með þetta frumvarp. Ég held að það sjái allir að það var ekki allt fullkomið í þessari framkvæmd. Það er þörf á því að laga margt og nú er lag fyrir nefndina að halda áfram með þá vinnu sem hún var í og við klárum málið. Ég vil þó segja að vissulega hefði verið heppilegra ef við hefðum náð að fá niðurstöður starfshópsins áður en málið kom hingað inn í þingið af því að þá er hægt að afgreiða það allt á sama tíma. Við vitum það sem sitjum hér á þingi að hlutirnir eru hægir og því meira sem hægt er að gera í einu því betra, því skilvirkara og því áhrifameira fyrir þær breytingar, fyrir þá sem þurfa á þessum breytingum að halda, fyrir þá stétt sem við erum að horfa á í þessu samhengi, fyrir þá sem nota þjónustuna o.s.frv.
Ég kem hér fyrst og fremst til að fagna því að þetta frumvarp sé fram komið. Ég hvet hæstv. ráðherra til dáða í því að hraða vinnunni og passa upp á um leið að við séum líka að horfa á hvata sem snúa að rafbílavæðingu, að sveigjanleika og nýsköpun, rekjanleika og annað. Ég hlakka til að við getum farið á dýptina í þessu máli í nefndinni en fagna því að þetta frumvarp sé komið hér inn til þingsins.