157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[14:15]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Ég hef nú komið hér í andsvar við ráðherra og í andsvar við hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur og í ræðu hér ekki fyrir svo löngu síðan, sem ég hygg að hafi verið einhverjar 12–13 mínútur, þannig að kannski þykir einhverjum ekki miklu við að bæta. Ég verð þó að koma aftur, því að eins og ég gat um í fyrri ræðu minni sat góður félagi minn, hv. þm. Jens Garðar Helgason, í sæti sínu og hristi höfuðið af miklum móð. Ég held ég hafi orðað það í fyrri ræðunni að ég hefði áhyggjur af hálsliðunum, en síðan þegar ég kem hér aftur inn í sal er áðurnefndur hv. þm. Jens Garðar Helgason, félagi minn, í ræðustól og er einmitt að tala um að sér þyki miður að góðir vinir sínir — bein tilvitnun, frú forseti — í Miðflokknum stökkvi á vagninn eða málið, ég man ekki hvort orðið hann notaði. Ég fór þá að velta fyrir mér, og þess vegna er ég kominn hingað aftur, hvort hv. þm. Jens Garðar Helgason hafi raunverulega hlustað á ræður mínar. Niðurstaða mín er nei. Ég held að hann hafi bara hlustað á fyrstu orðin sem voru á þá leið að ég fagnaði því að málið væri komið inn aftur og setti það svo í samhengi við að eitthvað yrði að gera, og um leið kvartaði ég undan getuleysi, í viðbrögðum gagnvart þeim ólögum sem sett voru hér af síðustu ríkisstjórn.

Síðan rakti ég lið fyrir lið hvað ég teldi vanta upp á til að slík þjónusta sem leigubílaþjónusta er gæti verið með fullnægjandi hætti og gæti tryggt öryggi hinna ýmsu hópa, vék þar að málum eins og íslenskukunnáttu, þ.e. lágmarksskilningi í íslensku og lágmarksgetu til að tjá sig á íslensku og hegðun bílstjóra, til að mynda utan bifreiða. Ég vék að fleiri þáttum. Ég vék að eldri borgurum. Ég vék að fötluðum einstaklingum o.s.frv. Ég vék að svindlinu, að hér væru bílstjórar á ferðinni sem hefðu fengið aðstoð til að taka íslenskt próf og svara öllum spurningum rétt þrátt fyrir að þeir skildu ekki stakt orð í íslensku, og svo efast menn eitthvað um svindl. Ég fór víðar en í meginatriðum var þetta efni ræðu minnar hér áðan. Þess vegna get ég ekki með nokkru móti skilið að félagi minn, hv. þm. Jens Garðar Helgason, skuli hafa kosið að skilja ræðu mína með þessum hætti nema þá aðeins að hér sé um að ræða, sem oft er gert í þessum þingsal og maður á kannski ekki að fetta fingur út í slík smáatriði, hefðbundna orðaleiki til að mála nú upp skýra afstöðu annars vegar milli Sjálfstæðisflokksins og hins mikla frelsis og Miðflokksins og íhaldsstefnu hans hins vegar. En sú var tíðin að hinn frjálslyndi Sjálfstæðisflokkur kallaði sig iðulega íhaldið þannig að ég átta mig ekki alveg á frá hvaða hlið vinur minn, hv. þm. Jens Garðar Helgason, er að koma.

Eins og ég hef hér vikið að, og tók fram og lagði mikla áherslu á í ræðu minni áðan, er þetta frumvarp hér sem varðar stöðvaskyldu auðvitað aðeins hænuskref í þá átt að bæta og tryggja betra öryggi á leigubílamarkaði fyrir neytendur. Það eru fjölmörg önnur atriði sem ég vék að í ræðu minni sem þurfa að koma til. Stöðvaskyldan er í sjálfu sér ekki einu sinni stærsti hlutinn. Eitt sem veldur mér áhyggjum er að þeir sem starfa í faginu núna muni hugsanlega verða fyrir vonbrigðum innan ekki langs tíma með það hversu litlar breytingar verði á markaðnum með stöðvaskyldunni. Ég spái því hins vegar, frú forseti, svo það sé skrásett í ræðu, að það upphefjist mikil leikfimi á leigubílamarkaði, verði þetta að lögum, með það hvernig stofnað verði til leigubílastöðva síendurtekið með nýjum nöfnum sem þó verða mjög keimlík eldri nöfnum. Ég hygg að ráðherra, sem nú er mættur í salinn og það er vel, skilji hvað ég er að fara og ég vonast eftir að hann herði, eins og ég hvatti hann til í fyrri ræðu minni, á þeirri vinnu sem ég hvatti til, þ.e. áframhaldandi vinnu við að tryggja öryggi farþega í leigubílum.