áhafnir skipa.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um áhafnir skipa. Í frumvarpinu er lögð til ein breyting á gildandi lögum. Það bætist við ný málsgrein sem snýr að heimildum ráðherra til að setja reglugerðir. Með frumvarpinu er ætlunin að bregðast við vanda Slysavarnafélagsins Landsbjargar við mönnun nýrra björgunarskipa.
Með samþykkt frumvarpsins er innviðaráðherra veitt heimild til að setja reglugerð sem mælir fyrir um námskeið fyrir skipstjórnarmenn og vélstjóra á skipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem sinna sérhæfðum verkefnum.
Starfsemi Landsbjargar miðar að því að koma í veg fyrir slys og bjarga mannslífum og verðmætum. Í þeim tilgangi er öflugur hópur sjálfboðaliða til taks ef út af bregður, á nóttu sem degi, allt árið um kring. Þörfin fyrir starfsemi björgunarsveitanna um land allt hefur margoft sannað sig, ekki síst með auknum ferðamannastraumi til landsins og jarðhræringum undanfarin ár.
Í desember 2019 skipaði forsætisráðherra starfshóp um eflingu björgunarskipa Landsbjargar. Hópurinn gaf frá sér skýrslu með tillögum í maí 2020 og var það mat hans að björgunarskipaflotinn þarfnaðist endurnýjunar til að tryggja öryggi og almannahagsmuni í landinu. Í framhaldinu var farið í þá vegferð að skipta út björgunarskipum félagsins. Kostnaði er skipt á milli ríkisins og félagsins.
Markmiðið með því að endurnýja skipakost Landsbjargar er að leggja grunn að enn öflugra starfi félagsins á komandi árum, efla útkallsgetu björgunarsveita og tryggja öryggi skipa og áhafna þeirra.
Nú eru fimm skip komin til landsins. Þau eru í Vestmannaeyjum, á Siglufirði, í Reykjavík, á Rifi og í Hornafirði. Fyrirhugað er að átta skip til viðbótar bætist við á næstu misserum.
Í febrúar síðastliðnum óskuðu forsvarsmenn félagsins eftir fundi með mér. Þar lýstu þeir áhyggjum sínum af mönnun skipanna því ekki er til að dreifa nógu mörgum sjálfboðaliðum með réttindi til starfa sem áhafnir um borð í nýju skipunum. Ég taldi því nauðsynlegt að bregðast við ástandinu og var sammála félaginu um að rétta leiðin væri að setja í lög heimild fyrir ráðherra að setja reglugerð.
Björgunarsveitir Landsbjargar samanstanda að miklu leyti af sjálfboðaliðum. Sjálfboðaliðar eru tilbúnir að taka að sér störf um borð í björgunarskipum félagsins, en hafa ekki alltaf réttindi til þeirra starfa. Félagið hefur því hug á því að setja á laggirnar nám fyrir þessa aðila sem gerir þá hæfa til starfa um borð í skipunum. Margir kostir fylgja því að gefa félaginu sjálfu færi á að halda námskeið fyrir sjálfboðaliða sína. Námskeiðin geta farið fram á þeim landsvæðum sem henta hverju sinni og á þeim tíma sem hentar sjálfboðaliðum. Félagið getur valið þrautreynda skipstjóra og vélstjóra af björgunarskipum sínum sem kennara á námskeiðunum og þeir miðlað af reynslu sinni. Ekkert verður slegið af kröfum til gæða námsins en námskrá verður samþykkt af Samgöngustofu sem einnig hefur eftirlit með náminu.
Íslendingar hafa löngum verið mikil siglingaþjóð. Við treystum á sjávarútveginn, á vöruflutninga á sjó og nú nýtir ferðaþjónustan einnig siglingar mikið til að þjónusta þá ferðamenn sem kjósa Ísland sem áfangastað. Við þurfum að tryggja viðbragð við atvikum og slysum sem orðið geta á hafinu í kringum landið. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir eyju í Norður-Atlantshafi þar sem veður geta verið válynd og hafstraumar og aðstæður geta komið skyndilega upp sem þarf að bregðast við.
Enginn efast um mikilvægi þess óeigingjarna starfs sem unnið er í þágu almannaheilla af björgunarsveitum landsins, undir hatti Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Framtíðarsýnin er að á Íslandi verði áfram reknar öflugar björgunarsveitir sem hafi yfir að ráða góðum tækjabúnaði. Vilji er til þess að þessar sveitir verði áfram reknar að miklu leyti af sjálfboðaliðum. Mikill metnaður ríkir hjá félaginu um að bjóða upp á öflugt nám fyrir sjálfboðaliða í samstarfi við félög sem sinna sambærilegum störfum á sambærilegum skipum í nágrannaríkjum okkar.
Virðulegi forseti. Ég hef nú farið yfir helstu efnisatriði frumvarpsins og vísa að öðru leyti til frumvarpsins sjálfs og greinargerðar sem fylgir því. Það er mitt mat að samþykkt frumvarpsins komi til með að stuðla að tryggara starfsumhverfi fyrir Slysavarnafélagið Landsbjörg og auðveldari mönnum björgunarskipa félagsins.
Ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar og 2. umræðu.