áhafnir skipa.
Virðulegi forseti. Réttindi, samkvæmt reglugerð sem ég mun gefa út, verða í samræmi við ákvæði frumvarpsins og munu eingöngu gilda til starfa um borð í björgunarskipum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar samkvæmt skipaskrá. Réttindi munu ekki gilda til að sinna launuðum störfum um borð í skipum, eingöngu fyrir þessi björgunarskip. Samgöngustofa hefur eftirlit með gæðum námsins og markmiðið er að engu að draga úr kröfum til náms eða þjálfunar til þessara starfa. Það má líka benda á að verði frumvarpið að lögum mun ég setja fram reglugerð sem mun fara í samráðsgátt þar sem viðkomandi hagaðilar geta veitt umsögn sína.
Varðandi síðari spurningu hv. þingmanns mun lagabreytingin gera það að verkum að Landsbjörg getur boðið upp á námskeið sem hentar sjálfboðaliðunum, eins og ég hef fjallað um áður, einmitt með það að markmiði að stuðla að mönnum skipanna á landsbyggðinni þar sem skorturinn hefur réttilega verið mestur. Hv. þingmaður minntist á konur. Það er gríðarlega mikilvægt að þetta námskeið nái líka til kvenna og að þær geti þá líka orðið hluti af áhöfnum þessara skipa. Það er mikilvægt vegna þess að við erum að sjálfsögðu þá að tvöfalda púllíuna af fólki sem gæti sinnt þessum mikilvægu störfum. Það er mjög mikilvægt að líta til þess. Ég tel að þetta sé algjörlega í samræmi við það sem félagið sjálft vill og þetta er í samræmi við það með þeim hætti að þá nær félagið til sem flestra sjálfboðaliða, getur menntað sem flesta sjálfboðaliða.