áhafnir skipa.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinni spurningu sína. Í greinargerðinni er komið sérstaklega inn á að gert sé ráð fyrir samstarfi við skólana til að menntun sjálfboðaliðanna geti nýst að einhverju leyti til öflunar frekari réttinda, ef þeir hafa áhuga á því. Ég tel hins vegar að það sé verið að leita til reyndra skipstjórnarmanna til þess að þeir geti komist á námskeið svo þeir fái réttindi á þessi skip. Þá væri námskeiðið sniðið sérstaklega að sjálfboðaliðunum varðandi tíma, stað o.s.frv.
Mér er mjög umhugað um að styrkja hefðbundna menntun í siglingatengdum greinum, eins og ég hef áður sagt. Ég get bent á að ég fór með minnisblað í ríkisstjórn á síðasta ríkisstjórnarfund fyrir helgi, síðasta föstudag, sem lýtur að samkeppnishæfni í siglingum og þá kom ég sérstaklega inn á menntunarmálin þar. Ég tel mjög mikilvægt að endurskoða það og spyrja sig að því hvort þetta eigi heima í Tækniskólanum eða í sérskólum, m.a. vegna þess að alla vega í gamla daga voru eldri nemendur að koma þar, þ.e. oft í kringum 25 ára aldur eða svo, með mikla sjóreynslu sem hásetar og bátsmenn og þegar fólk er komið á ákveðinn aldur, þá hefur það kannski ekki mikinn áhuga á að setjast á skólabekk með 16 ára gömlum börnum. Þetta eru yfirmannaskólar, þetta á að vera yfirmannaskóli og ég tel mjög mikilvægt að við skoðum þetta og við höfum verið í sambandi við menntamálaráðuneytið hvað þetta varðar. Það er vel hægt að gera þetta samhliða því að veita Landsbjörgu leyfi til að halda úti námi fyrir sína sjálfboðaliða, þ.e. gera þetta samkvæmt frumvarpinu. Nám þar sem námskrá verður samþykkt af öryggisstofnun siglinga, Samgöngustofu, sem mun hafa eftirlit með náminu. Þetta námskeið mun að sjálfsögðu falla að alþjóðlegum gæðakröfum og ég minntist á í framsöguræðu minni að það verði samstarf við nágrannaríkin hvað þetta varðar. Mig minnir varðandi gæðakröfur að það hafi verið litið t.d. til Bretlands sem er með mjög öflug björgunarsamtök. (Forseti hringir.) Ég tel að þetta sé gríðarlega mikilvægt svo við náum að manna þessi skip alls staðar á landinu. Við erum eiginlega að tala um að reyndir skipstjórnarmenn (Forseti hringir.) geti farið á námskeið og sinnt þessum skipum.