borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Virðulegi forseti, Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um borgarstefnu. Tillagan var lögð fram á 156. löggjafarþingi og gekk þá til umhverfis- og samgöngunefndar sem skilaði nefndaráliti ásamt breytingartillögu. Gerð hefur verið breyting á þingsályktunartillögunni sem er í fullu samræmi við tillögu umhverfis- og samgöngunefndar frá síðustu umfjöllun um málið.
Framlagning borgarstefnu er liður í framkvæmd stefnumótandi byggðaáætlunar, sem var samþykkt einróma hér á Alþingi í júní 2022. Ein af áherslum byggðaáætlunar er að unnið verði með styrkleika einstakra svæða. Hvert svæði hefur sína styrkleika og það er mikilvægt að við vinnum með þá alla. Þessi áhersla felur m.a. í sér að móta stefnu þar sem hlutverk Reykjavíkur og höfuðborgarsvæðisins annars vegar og Akureyrarsvæðisins hins vegar verði skilgreind í byggðaþróun í landinu.
Borgarstefna byggist á þessari áherslu en markmið hennar er að þessi tvö stærstu þéttbýlissvæði landsins verði efld og samkeppnishæfni þeirra og hlutverk í byggðaþróun landsins styrkt. Borgarstefna er þannig eitt púsl af mörgum í byggðastefnu stjórnvalda.
Í október 2022 skipaði þáverandi innviðaráðherra starfshóp um mótun borgarstefnu á grundvelli byggðaáætlunar. Tillagan sem ég mæli hér fyrir byggist á skýrslu starfshópsins.
Með borgarstefnu er stuðlað að þróun og eflingu þessara tveggja borgarsvæða. Í því felst annars vegar að styrkja höfuðborgarhlutverk Reykjavíkur, höfuðborgarsvæðið og borgarsvæðið í heild. Hins vegar felst í því að festa Akureyri í sessi sem svæðisborg og skilgreina og efla hlutverk hennar og borgarsvæðið. Með því er svæðisborgin viðurkennd sem leiðandi afl og mikilvægi hennar í byggðastefnu stjórnvalda skýrt. Á sama tíma er viðurkennd sérstaða svæðisborgarinnar Akureyrar og mikilvægi hennar fyrir alþjóðlega samkeppnishæfni landsins og sjálfbæra þróun, búsetu og lífsgæði á Norðurlandi öllu og austur um land. Ég legg sérstaklega áherslu á mikilvægi þessara stefna fyrir stefnu fyrir alþjóðlega samkeppnishæfni Íslands, samkeppnishæfni sem lýtur að upplýsingatæknibyltingunni, að halda í menntað fólk o.s.frv.
Tæplega 90% íbúa á Íslandi búa á borgarsvæðunum tveimur og það er þess vegna gríðarlega mikilvægt að stjórnvöld láti sig það varða hvernig borgarsvæðin okkar þróast til framtíðar. 90% íbúa og við erum að tala um að 82% íbúanna búa á svokölluðu Hvítár-Hvítársvæði, Hvítá fyrir norðan Selfoss og Hvítá í Borgarfirði. Svo búa 8% á Akureyrarsvæðinu. Þannig er dreifing byggðar á Íslandi.
Markmið borgarstefnu er einnig að styrkja stöðu Íslands í alþjóðlegri samkeppni um fólk, fyrirtæki og fjármagn.
OECD, Efnahags- og framfarastofnunin, hefur lagt mikla áherslu á að ríki móti sér sérstaka borgarstefnu sem stuðli að sjálfbærum vexti borga og borgarsvæða og aukinni skilvirkni sem lið í að efla samkeppnishæfni viðkomandi svæða.
Borgirnar okkar eru ekki í samkeppni innbyrðis eða í samkeppni við önnur landsvæði hér á landi, heldur eru þær í samkeppni við aðrar borgir í nágrannalöndum okkar. Um þetta snýst borgarstefnan.
Við erum að horfa til þess að landshlutarnir hafa mismunandi styrkleika og við eigum að nýta þá alla í þágu landsins alls. Alþjóðleg samkeppnishæfni landsins veltur nefnilega að miklu leyti á því að borgirnar og borgarsvæðin, Reykjavík og svæðisborgin Akureyri, standist samanburð í samkeppni við borgarsvæði erlendis.
Virðulegi forseti. Ég mun nú gera nánari grein fyrir framtíðarsýn minni sem sett er fram í borgarstefnu. Ég tel mikilvægt að ríki og borg standi saman að því að efla höfuðborgina og lyfta henni í alþjóðlegri samkeppni borga enda er Reykjavík miðstöð viðskipta, stjórnsýslu, menntunar og menningar í landinu og megingátt inn í landið fyrir sameiginleg verkefni, alþjóðatengsl, vöruflutninga og fjárfestingar. Þá tel ég mikilvægt að borgarsvæði Reykjavíkur og höfuðborgarsvæðisins í heild verði eflt í alþjóðlegri samkeppni borga sem laðar að sér öfluga fjárfestingu og eftirsóttan mannauð.
Ég legg til að borgarsvæði Reykjavíkur og höfuðborgarsvæðisins verði skilgreint þannig að það markast af svæðinu Hvítá-Hvítá, þ.e. svæðinu um Suðurnes, austur á Selfoss og norður í Borgarnes. Það verði borgarsvæði Reykjavíkur. Þetta er orðið vinnusóknarsvæði Reykjavíkur og er orðið ein heild að mörgu leyti.
Við ákvarðanir um skipulag og uppbyggingu innviða verði horft á borgarsvæðið sem eina heild þegar kemur að atvinnusókn, búsetu og samgöngum innan þess. Hér er ég t.d. að horfa til þess að tryggja aðgengi annarra íbúa landsins á borgarsvæðinu, t.d. með Reykjavíkurflugvelli, og einnig að efla samgöngur innan svæðisins. Samgöngubætur á borð við uppbyggingu Sundabrautar og samstarf sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um samgöngusáttmála er frábært dæmi um hvernig má tengja borgarsvæði Reykjavíkur betur saman sem eina heild.
Ég legg jafnframt til að Akureyri verði skilgreind sem svæðisborg og hlutverk hennar sem slíkrar mótað í samstarfi ríkis og Akureyrar. Svæðisborgin verði efld sem drifkraftur í þjónustu og menningarlífi íbúa og nærliggjandi byggða og sérstaða svæðisins nýtt í því skyni. Samhliða mótun hlutverks Akureyrar sem svæðisborgar verði unnið að eflingu borgarsvæðisins í samstarfi ríkis og hlutaðeigandi sveitarfélaga. Afraksturinn verði stærra og öflugra atvinnusvæði, sem jafnframt er eitt búsetu- og þjónustusvæði. Við ákvarðanir um uppbyggingu innviða verði horft til þess að styðja við þá þróun. Í borgarstefnu er horft til þess að borgarsvæði Akureyrar nái í dag um Eyjafjörð og að einhverju marki austur til Húsavíkur og Mývatnssveitar.
Í borgarstefnu eru skilgreind lykilviðfangsefni sem unnið verði að til að tryggja að sú framtíðarsýn sem lýst er í stefnunni verði að veruleika. Lykilviðfangsefnin eru eftirfarandi:
1. Atvinnulíf, fjárfestingar og nýsköpun.
2. Alþjóðleg samkeppnishæfni.
3. Innviðir og umhverfi.
4. Heilbrigðis- og félagsmál.
5. Menntun og menning.
Nánar er fjallað um lykilviðfangsefnin í greinargerð þingsályktunartillögunnar.
Aðaltillaga mín í borgarstefnu er að koma á formlegum samstarfsvettvangi ríkisins og borgarsvæðanna. Á þeim vettvangi verði inntak borgarstefnu þróað þannig að þær áherslur sem eru settar fram leiði til aðgerða og styðji þannig við að markmiðum stefnunnar verði náð. Við erum þá líklega að tala um hér að það verði komið fram með aðgerðaáætlun sem verði unnið eftir. Þetta er þó í fyrsta skipti sem mótuð er heildstæð stefna um borgir og borgarsvæði á Íslandi og þróun þeirra. Þess vegna er mikilvægt að við komum okkur saman um stefnuna, framtíðarsýnina og þær skilgreiningar sem hér eru settar fram, áður en við hefjumst handa við að útfæra stefnuna með aðgerðum.
Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir efni þingsályktunartillögu um borgarstefnu í stórum dráttum og legg til að henni verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar og síðari umræðu.