157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

borgarstefna fyrir árin 2025--2040.

85. mál
[15:06]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Varðandi Reykjavíkurflugvöll er það stefna ríkisstjórnarinnar að standa vörð um Reykjavíkurflugvöll í núverandi mynd. Ég hef komið að því máli og ég tel að þetta sé eitt af lykilverkefnum mínum sem innviðaráðherra og samgönguráðherra, að standa vörð um Reykjavíkurflugvöll. Ég get ekki séð annað en að það sé pólitísk samstaða um það innan ríkisstjórnarinnar og hér á þingi. Leit hefur staðið yfir að flugvelli annars staðar en hann hefur ekki fundist. Það getur vel verið að sú leit haldi áfram einhvers staðar en við getum haldið áfram að leita og leita þar til þar að kemur. Ég tel að það sé skylda Reykjavíkur sem höfuðborgar að hafa Reykjavíkurflugvöll á þeim stað sem hann er í dag. Af hverju? Þetta er tenging við landsbyggðina. Þetta er grundvallartenging við landsbyggðina og það er einfaldlega hlutverk höfuðborgar að hafa góðar samgöngur við landsbyggðina. Ég kom inn á þetta í ræðu minni áðan og við það stendur. Það er mikilvægt að Reykjavík verði sama þungamiðja hvað það varðar. Ef ekki verður góð tenging með flugi í okkar dreifbýla og stóra landi missir landsbyggðin (Forseti hringir.) mikilvægan aðgang að Reykjavík varðandi sjúkraþjónustu og fleiri atriði.