157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

borgarstefna fyrir árin 2025--2040.

85. mál
[15:08]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Það er ákveðin hætta á því að borgarstefnan geti leitt til þess að auka misvægi á milli borga og áhrifasvæða þeirra annars vegar og landsbyggðarinnar hins vegar. Það er þess vegna mikilvægt að mínu mati að framkvæmd borgarstefnu sé í takti við byggðastefnu og unnin í samstarfi við sveitarfélög og landshlutasamtök. Ég kem úr kjördæmi þar sem hluti kjördæmisins, þ.e. Vesturland, fellur innan borgaráhrifasvæðis og hluti utan þess. Mig langar því að fá staðfestingu hæstv. ráðherra á því hvort það sé ekki öruggt mál að framkvæmdin á þessari stefnu verði unnin í góðu samstarfi við sveitarfélög og landshlutasamtök.