157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

borgarstefna fyrir árin 2025--2040.

85. mál
[15:10]
Horfa

Eiríkur Björn Björgvinsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir kynninguna á þessari þingsályktunartillögu. Hún er um margt mjög áhugaverð og ekki síst hugtök og skilgreiningar sem þarna koma fram, sumt pínu framandi. Þar sem ég hef bara eina mínútu ætla ég að henda mér beint í þessar spurningar sem ég er með. Það kemur fram varðandi höfuðborgina — okkur er auðvitað tíðrætt um höfuðborgina sem loks er komin inn í byggðastefnuna okkar, það gerðist held ég 2012 eða 2015 — að hún sé leiðandi afl. Mig langar að fá skilgreiningar frá ráðherra á því hvað er átt við með að hún sé leiðandi afl. Hann gæti kannski sett okkur aðeins inn í það. Eins líka það að borgarsamfélögin skuli vera sjálfbær. Mig langar aðeins að fá að heyra skoðanir ráðherrans á því hvernig ber að túlka það og hvernig hann sér fyrir sér að það verði framkvæmt. Við áttum ágætissamtal á síðasta þingi, ég og ráðherra, varðandi samstarf ríkis og sveitarfélaga. Hér kemur einmitt fram að á skuli komast sérstakur samráðsvettvangur og væri ágætt að heyra ráðherrann skilgreina það aðeins nánar, hvernig hann sé þennan samráðsvettvang fyrir sér.