157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

borgarstefna fyrir árin 2025--2040.

85. mál
[15:14]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég fór að hugsa akkúrat á þessum nótum, ég sá að borgarstefna var bara fyrir Reykjavík og Akureyri. Ég sagði: Hvað með alla hina staðina? Hvað með höfuðstað Vestfjarða, Ísafjörð? Hvað með Sauðárkrók? Hvað með Egilsstaði o.s.frv.? Ég sannfærðist mjög fljótlega eftir að ég fór að kynna mér þetta betur. Ég vildi bara fá höfuðstaðastefnu, höfuðstaðastefnu landshluta vil ég fá, bara búmm, sagði það á fyrsta fundi. Nei, en þetta er ekki hugsað gegn þeim og þessir staðir mega alls ekki vera út undan. Eins og ég sagði í framsöguræðu minni þá er þetta hugsað fyrir tvö helstu þéttbýlissvæði landsins. Þetta er ekkert hugsað til að draga frá öðrum. Ég tel frekar að það sé mikilvægt að við horfum á þetta þannig að við erum öll í sama liðinu. Þarna er verið að horfa til styrkleika Reykjavíkurborgar, Reykjavíkur og þess mikla þéttbýlissvæðis sem er hérna, höfuðborgarsvæðisins, og styrkleika Akureyrar sem helsta þéttbýlissvæðis utan höfuðborgarsvæðisins, og vinna með þá styrkleika. En þetta er ekkert hugsað þannig að þá gleymist hinir staðirnir, það er mjög mikilvægt. Þetta er bara ein aðgerð af mörgum í byggðaáætlun. Við verðum að standa vörð um Reykjavík og Akureyri (Forseti hringir.) sem mikilvæga þéttbýlisstaði og svo að sjálfsögðu hina líka. (Forseti hringir.) En við erum bara að taka þessa staði og vonandi get ég komið með stefnu varðandi hina höfuðstaðina líka.