borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Virðulegur forseti. Það er stórt spurt. Hvað þýðir þetta plagg? Borgarstefna er aðgerð í gildandi byggðaáætlun, nánar tiltekið aðgerð C.4. í byggðaáætlun sem Alþingi samþykkti á síðasta kjörtímabili. Borgarstefna kveður á um að mótaðar verði stefnur í þeim tilgangi að stuðla að því að stærstu þéttbýlissvæðin verði efld og samkeppnishæfni þeirra líka. Samkeppni við hverja? Samkeppni við aðrar sambærilegar borgir úti í heimi. Reykjavíkurborg er ekki að fara í samkeppni við Egilsstaði, Ísafjörð, Grundarfjörð o.s.frv. Það er ekki að fara að gerast. Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, leggur mikla áherslu á að ríki móti sér borgarstefnu til að stuðla að samkeppnishæfni viðkomandi svæða, þar með landsins alls. Við erum að stuðla að því að efla samkeppnishæfni Íslands með borgarstefnu, bæði varðandi Akureyri og Reykjavík. Ekki gleyma Akureyri, Akureyri er á landsbyggðinni og við verðum líka að efla samkeppnishæfni landsbyggðarinnar. Þarna erum við að horfa í þessu máli til Akureyrar. Líka að það borgar sig að vera leiðandi afl, ég fékk mjög góða spurningu hérna um það áðan, hvað er að vera leiðandi afl og (Forseti hringir.) mikilvægi þess fyrir borgarstefnu stjórnvalda. (Forseti hringir.) Við erum að horfa til helstu þéttbýlissvæða landsins í byggðastefnu.