157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

borgarstefna fyrir árin 2025--2040.

85. mál
[15:23]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir þetta svar og styð hann í því að auðvitað verði gerð grein fyrir skyldunum. Mig langar til að nefna af því að ráðherrann nefndi að það væri ekki samkeppniselement í gangi milli höfuðborgarinnar og landsbyggðarinnar, að það er bara ekki alveg rétt. Ég get nefnt dæmi hér af því þegar liðskiptasetrið var fyrirhugað á Akranesi. Fulltrúar ráðuneytisins mættu á þann fund þegar verið var að kynna þetta og töldu því helst til foráttu að það yrði sett liðskiptasetur á Akranesi að það yrði spekileki, það yrði spekileki héðan af höfuðborgarsvæðinu, af Landspítalanum. Það var fyrsta atriðið. Hitt atriðið var síðan það að það væri svo rosalega langt upp á Akranes. Þetta voru ástæðurnar sem ráðuneytið taldi upp á þeim tíma.

Mig langar til að forvitnast gagnvart ráðherranum: Sér hann það fyrir sér t.d. að við endurskilgreinum heilbrigðisumdæmin á grundvelli þess, ef hann er að horfa alltaf á Hvítár-Hvítársvæðið og svo Akureyrarsvæðið, að við munum efla t.d. sjúkrastofnanir utan þeirra svæða? Þá velti ég fyrir mér t.d. hlutskipti Akraness.