borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Herra forseti. Ég tel að hér sé um mikilvægt mál að ræða. Engu að síður var mjög gott að fá fram þá spurningu hér í umræðunni frá hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur hvert markmiðið væri með þessu, hver tilgangurinn væri og til hvers við værum að þessu. Ég held að það sé alveg augljóst að við erum hér að fá tæki fyrir okkur stjórnmálamennina til að vinna að uppbyggingu og samkeppnishæfi þessara staða. Einnig vil ég taka fram að við erum að minna okkur á skyldur höfuðborgarinnar sem koma fram í þessari stefnu. Þar kemur einfaldlega fram að Reykjavíkurborg er miðstöð stjórnsýslu, lista, menningar og svo má lengi telja og er hornsteinn heilbrigðismála og það kemur mjög skýrt fram og það styrkir auðvitað algerlega grundvöll Reykjavíkurflugvallar. Þess vegna ættu allir borgarfulltrúar, sem taka það alvarlega að Reykjavíkurborg sé höfuðborg, að horfa einnig til þeirra skyldna sem því fylgja en ekki eingöngu að vera stærsti bróðirinn í bekknum og taka til sín heldur einnig að geta þjónustað og tekið það hlutverk að vera höfuðborg allra landsmanna. Hv. þm. Ingibjörg Davíðsdóttir var að velta því fyrir sér hvaða þýðingu þetta hefði fyrir Reykjavíkurflugvöll. Ég tel einfaldlega að þessi stefna, eins og hún er lögð hér fram af hæstv. ráðherra, styrki grundvö ll Reykjavíkurflugvallar.
En að öðru. Auðvitað er þetta tæki og það gagnast ekki aðeins okkur sem erum þingmenn landsbyggðarinnar og Akureyrar heldur einnig sveitarstjórnarmönnum. Þegar þeir eru hér að minna á að það verði að treysta hér uppbyggingu innviða og þjónustu, t.d. á Akureyri, þá er hægt að vísa í þessa ágætu stefnu því til rökstuðnings, að það þurfi að fá hér fjármuni til jafns eða í samhengi við hlutverk Akureyrar, t.d. á listasafnið, sjúkrahúsið, Hof og fleiri þætti. Ég tel að þessi stefna sé mjög góð hvað það varðar að tryggja t.d. hlut og sess Háskólans á Akureyri. Menn voru hér að velta því fyrir sér, og það var orðið, fannst manni, kannski nafnið á mögulegri sameiningu Bifrastar, sem á sér merka sögu sem skóli samvinnumanna og samvinnuhugsjónarinnar allt frá miðri síðustu öld, að ef nafnið yrði ekki tengt við Akureyri þá væri mögulega starfsemin og miðstöðin á Akureyri í hættu. Ég tel að einmitt þetta plagg — af því að menn eru að velta fyrir sér tilganginum, það eigi að byggja þarna upp samkeppnishæfa svæðisborg og mér finnst það svolítið undarlegt sem Norðlendingi að tala um svæðisborg, miklu frekar finnst mér fallegra að tala um höfuðstað Norðurlands, Akureyri, þá finnst mér það kannski vera, hvað eigum við að segja, tryggara að þessi stefna sé tekin alvarlega og að stjórnmálamenn um land allt leiti í þessa stefnu sér til fulltingis og rökstuðnings fyrir því að byggja upp umrædda svæðisborg og síðan að höfuðborgin Reykjavík líti til allra átta og taki sitt hlutverk alvarlega hvað varðar þjónustu við landsmenn alla.
Það er fleira sem mér finnst rétt að huga þegar menn eru að fara yfir þessi hlutverk og markmið og tilganginn með þessu. Ég tel einmitt að við þurfum að fara í gegnum stofnanastrúktúrinn okkar og vita hvort það sé ekki einmitt einhver starfsemi sem er hér í Reykjavík sem er að þjóna landsbyggðinni sem gæti mögulega verið á Akureyri. Ég vil nefna hér Isavia innan lands t.d., Rarik, sem er með fáa neytendur í Reykjavík, ég held að þeir séu bara allir á landsbyggðinni. Auðvitað eigum við að nota þessa stefnu því til rökstuðnings að starfsemi sem er að þjónusta landsbyggðina fari þá fram þar, enda yrði þá mögulega meiri skilningur á hagsmunum neytenda. Ég vil nefna hér Rarik og Isavia og mögulega eru það fleiri.
Ég ítreka að þetta er gott plagg og ég tel að það sé bara hagur af því að það fái góða umfjöllun í nefnd og ekki aðeins hér á meðal þingmanna heldur einnig hjá sveitarstjórnarmönnum, og þá á ég ekki síst við í Reykjavík, þannig að þeir átti sig vel á hlutverki sínu og m.a. að gæta að því að gæta að hagsmunum þeirra sem búa utan höfuðborgarinnar ef Reykjavíkurborg ætlar að vera höfuðborg landsmanna allra. Þannig að ég fagna þessu máli og tel að það muni verða landinu til heilla.