borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Herra forseti. Ég tók það nú fram í ræðu minni að þetta gæti verið gott tæki til þess að draga fram bæði skyldur höfuðborgarinnar og síðan gæti þetta líka verið gott tæki fyrir svæðisborgina eða höfuðstað Norðurlands til að fá til sín fjármuni og verkefni og fá fram skilning í að efla höfuðstað Norðurlands. Ég held að það sé þar sem tækifærin í þessu felast. Við verðum líka að horfa á það að sterk Akureyri þjónar auðvitað sem þjónustukjarni íbúum Fjallabyggðar og Húsavíkur og styrkir landshlutann allan. Það má einnig minna á að það væri líka jákvætt ef að Akureyri tæki að sér að vera einfaldlega svolítill skjöldur landsbyggðarinnar allrar og fái þar hlutverk í því, vegna þess að hún hefur ákveðið afl, í að treysta byggð og vera meiri talsmaður byggðanna sem eru í nágrenninu. Ég held að það geti falist tækifæri í því fyrir þjóðina alla.