157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

borgarstefna fyrir árin 2025--2040.

85. mál
[15:35]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður talar hér einmitt um til að mynda skyldur höfuðborgarinnar. Þá spyr ég: Hvernig telur hv. þingmaður að þær skyldur komi fram í þeirri þingsályktunartillögu sem hér liggur fyrir? Jafnframt heyri ég og skynja á hv. þingmanni að hann telji ákveðin tækifæri felast í því fyrir m.a. Akureyri. Hvernig birtast þau tækifæri okkur í þingsályktunartillögunni? Þessu góða plaggi, eins og hv. þingmaður lýsir því, sem liggur hér fyrir.