borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Virðulegur forseti. Við ræðum hér tillögu til þingsályktunar um borgarstefnu fyrir árin 2025–2040. Í þingsályktunartillögunni segir að við séum að fela ríkisstjórninni að vinna að framkvæmd borgarstefnu. Síðan koma þrír stuttir kaflar; fyrst um framtíðarsýn og meginmarkmið, annar örstuttur um lykilviðfangsefni, og þriðji um samstarf ríkis og borgarsvæðanna. Sá þriðji gengur í rauninni bara út á að koma á formlegum samstarfsvettvangi ríkis og borgarsvæðanna.
Virðulegur forseti. Ég gagnrýndi þessa þingsályktunartillögu mjög þegar hún kom fram á síðasta þingi. Ég hef ekkert hvikað frá þeirri gagnrýni og ég ítreka að það er þingsályktunin sem slík sem ég er að gagnrýna, þrátt fyrir að í greinargerðinni sé margt mjög gott og mörgu af því sem fram hefur komið í máli ráðherrans og hv. þingmanna sem hér hafa tekið til máls get ég verið sammála. En, virðulegur forseti, það sem fólk hefur sagt hér stendur ekki í þingsályktunartillögunni sem er til umfjöllunar hér á þinginu. Það eru bara falleg orð um það hvernig fólk vill að þetta nýtist. Ég ætla að ítreka enn og aftur, af því að við erum hér á Alþingi að fjalla um þingsályktunartillögu, að við getum gert breytingar. Það er reyndar ekki mjög algengt en það er bara á þeim texta sem fellur undir þingsályktunartillöguna, ekki í greinargerðinni.
Virðulegur forseti. Ég gagnrýndi þetta mjög hérna síðast því hér er engin — hér er framtíðarsýn en það er ekkert um framkvæmdina. Við eigum bara að fela hæstv. ríkisstjórn að vinna að framkvæmd. Það er enginn ábyrgðaraðili fyrir einstökum verkþáttum, það eru engin kostnaðarviðmið fyrir eitt né neitt. Það er í engu samræmi við flestar aðrar aðgerðaáætlanir sem hingað rata inn í þingið í formi þingsályktunartillagna og þær eru allmargar. Hér höfum við afgreitt stefnu til að mynda frá hæstv. menningarmálaráðherra á síðustu árum um sviðslistastefnu, stefnu á sviði skapandi greina og það er fjöldinn allur sem hefur verið á þeim vettvangi. Nýlega vorum við að tala um aðgerðaáætlun um launajafnrétti kynjanna sem hæstv. dómsmálaráðherra kom með; löng og mikil stefna. Ég man ekki hvort það voru 45 aðgerðir tímasettar, ábyrgðaraðili og kostnaður á þessu. Það er ekkert svoleiðis hér.
Virðulegur forseti. Fyrsta athugasemd mín á þessu þingi lýtur að forgangsröðun þessarar ríkisstjórnar. Þess vegna spurði ég hæstv. ráðherra áðan í andsvörum hversu mikilvægt hann teldi að stefna sem þessi fengi afgreiðslu þingsins. Ég gat ekki annað heyrt á orðum hans en að hann teldi það nú nokkuð mikilvægt. Hann talaði líka um samkeppnishæfni svæðisins. Ég gat verið mjög sammála hæstv. ráðherra í mörgu af því sem hann sagði en hann nefndi líka að ríkisstjórnin væri að vinna atvinnustefnu. Við höfum nú aldeilis heyrt af því og því hefur svolítið verið haldið fram að það sé einhvers konar „planið“ sem Samfylkingin fór með hér fyrir kosningar. En, virðulegur forseti, atvinnustefna er ekki á þingmálaskránni. Forsætisráðherra hefur svarað því þannig til að það hafi ekki staðið til að koma með atvinnustefnu hér fyrir þingið en það á að eyða tíma þingsins í að fjalla um að fela ríkisstjórninni að framkvæma einhverja borgarstefnu þar sem áherslur og ábyrgð er óljós með öllu.
Virðulegur forseti. Ég vænti þess að hæstv. ráðherra taki undir ósk mína um að atvinnustefna fái hér umræðu og afgreiðslu í þinginu eins og sú stefna sem hann leggur hér fram. Þá mælist ég til þess að sú stefna verði líka greinarbetri en sú stefna sem hér er svo að þingið geti raunverulega haft áhrif á þá stefnu sem á að marka atvinnuvegunum til lengri tíma. Ég ætla að vona að það snúi ekki bara að skattahækkunum á atvinnuvegina.
Virðulegur forseti. Þá ætla ég að koma að öðrum punktinum í gagnrýni minni á þetta. Ég óttast að þetta plagg sem við erum hér að ræða og sumum finnst mjög gott plagg, og fólk getur farið upp í alls konar lýsingar á þessu, gefi falskar vonir og væntingar. Það finnst mér ekki gott. Hér hafa til að mynda þingmenn komið upp og talað um ábyrgð höfuðborgarsvæðisins og vilja meina að þetta plagg styrki veru Reykjavíkurflugvallar á þeim stað sem hann er í dag. Ég ætla að leyfa mér að efast stórkostlega um að það sé algjör sátt um það í þessari hæstv. ríkisstjórn, enda væri það auðvitað svo, og það er kannski eðlilegt að hv. umhverfis- og samgöngunefnd taki það bara til sín — ef þau vilja að þessi borgarstefna geri einmitt það er það skrifað inn í stefnuna, skrifað inn í þingsályktunartillöguna að ráðherra beri að tryggja það. Ef þessi borgarstefna hér á að hafa til að mynda áhrif á Háskólann á Akureyri og mikilvægi hans þá væri auðvitað eðlilegt að skrifa það líka inn í þingsályktunartillöguna. Ef það á að tryggja það að hér sé heilbrigðisþjónusta og aðgengi að öllu þá á auðvitað að skrifa það inn. En í þeim litla kafla sem fjallar um lykilviðfangsefni segir bara, með leyfi forseta:
„a. Atvinnulíf, fjárfestingar og nýsköpun.
b. Alþjóðleg samkeppnishæfni.
c. Innviðir og umhverfi.
d. Heilbrigðis- og félagsmál.
e. Menntun og menning.“
Svo er ekkert meira um þessi lykilviðfangsefni. Það er ekkert í þingsályktunartillögunni sem segir: Og hvað? Hvað þýðir það? En ég get verið hjartanlega sammála hæstv. ráðherra um mikilvægi þess að efla samkeppnishæfni, og samkeppnishæfni höfuðborgarsvæðisins er ekki samkeppni við aðra hluta af landinu. Við erum hreinlega í samkeppni við önnur lönd og önnur borgarsvæði. Þar get ég verið hjartanlega sammála hæstv. ráðherra.
Að síðustu, svona efnislega, því eins og ég vona að allir taki eftir þá finnst mér þetta ekkert rosalega gott plagg. Mér finnst góð vinna í þessu. Það er mjög áhugaverð greinargerð. Ég skil mjög vel vinnuna en þingsályktunartillagan sjálf, þessi eina og hálfa blaðsíða sem raunverulega er til umfjöllunar, þar sem við þingmenn getum raunverulega haft áhrif, það er lítið sem ekkert og ég hvet þingmenn í hv. umhverfis- og samgöngunefnd til að koma með breytingartillögur um það sem þau vilja raunverulega sjá hérna því það er ekkert hægt að lesa út úr þessum texta, ég tala nú ekki um að setja ábyrgðaraðila og kostnað á þessa þætti.
Efnislega ætla ég líka að segja það, virðulegur forseti, að hér er talað um að skilgreina borgarsvæði Reykjavíkur og höfuðborgarsvæðisins sem svæðið sem markast af svæðinu frá Hvítá til Hvítár, þ.e. svæðið frá Reykjanesi austur á Selfoss og norður í Borgarnes.
Virðulegur forseti. Ég er ekki viss um að ég geti skrifað undir þetta. Ég velti því fyrir mér, nú sit ég ekki í hv. nefnd, hvort það hafi verið skoðað sérstaklega: Er engin hætta á ruglingi við önnur lög, aðrar opinberar stefnur eða eitthvað slíkt þegar kemur að þessu, að skilgreina þetta með þessum hætti? Nú erum við t.d. með sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu í þéttu samstarfi í gegnum SSH, Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Það sama á við varðandi sveitarfélögin á Vesturlandi og svo er á Suðurnesjum annað og á Suðurlandi annað. Er einhver akkur í því að við förum hér í óljósu þingplaggi að skilgreina þetta risastóra svæði, með ólíka innbyrðis hagsmuni að einhverju leyti, sem eitthvert borgarsvæði? Ég veit það ekki, vill fólkið sem býr í Borgarnesi vera skilgreint af Alþingi Íslendinga sem íbúar á borgarsvæði höfuðborgarsvæðisins? Ég veit það ekki. Spurði einhver hin sveitarfélögin? Ég hef ekki hugmynd. Þetta skýtur skökku við að mínu mati og ég tala nú ekki um borgarsvæðið Akureyri. Fyrirgefið, mér finnst þetta, virðulegur forseti, bara eitthvert orðskrípi. Af hverju erum við ekki bara að tala um Akureyrarborg, höfuðborg norðurslóða? Af hverju erum við ekki bara stór með okkur og segjum eitthvað alvöru um Akureyri og mikilvægi þess svæðis? En borgarsvæði Akureyrar? Ég veit það ekki, var einhver sem bað um þetta? Var einhver sem var alveg æstur í (Gripið fram í.) að vilja endilega tilheyra svæðisborginni Akureyri? Ég veit það ekki, virðulegur forseti, þannig að ég ætla líka að biðja hv. þingmenn í þessari ágætu nefnd að skoða þetta: Eru þetta einhver orð sem við viljum vera með einhverja skilgreiningu hér á í einhvers konar mjög svo óljósri þingsályktunartillögu um eitthvað sem mér sýnist einna helst að sé til þess gert að fólk geti túlkað með sínum eigin eyrum og skoðunum og hyggist geta nýtt sér sem einhvers konar tæki og tól til að berjast fyrir sitt svæði eða mikilvægi einhverra ákveðinna svæða umfram önnur?
Virðulegur forseti. Eins og heyrist af þessu þá stendur hér neikvæða Bryndís Haraldsdóttir sem er nú yfirleitt nokkuð jákvæð en í þessu tilfelli þá held ég að hér væri bara betra heima setið en af stað farið.