157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

borgarstefna fyrir árin 2025--2040.

85. mál
[15:48]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðu sína sem var um margt áhugaverð og full af neikvæðni svo ekki sé sagt annað. Ef við förum yfir texta í þingsályktunartillögunni, þá segir þar, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að vinna að framkvæmd borgarstefnu. Borgarstefna verði hluti af samhæfingu stefna í samgöngumálum, byggðamálum og málefnum sveitarfélaga og taki mið af samþykktum stefnum stjórnvalda á öðrum málefnasviðum.“

Hvað þýðir þetta? Þetta þýðir það að þegar ég mun t.d. mæla fyrir samgönguáætlun þá verði litið til þess hvernig við getum eflt þessi svæði. Á bls. 3 í greinargerðinni segir að aðgerð C.4. sé borgarstefna, aðgerð C sé hluti af byggðaáætlun sem var samþykkt á Alþingi í júní 2022. Síðan segir, með leyfi forseta:

„Aðgerð C.4. Borgarstefna í aðgerðaáætlun byggist á þessari áherslu en skilgreint markmið hennar er að stærstu þéttbýlissvæði landsins, Reykjavík og Akureyri, verði efld og samkeppnishæfni þeirra og hlutverk í byggðaþróun landsins styrkt.“

Markmiðið er því að efla þessi tvö svæði. Það getum við gert með samgönguáætlun. Það getum við gert í byggðamálum með byggðaáætlun. Það getum við gert í málefnum sveitarfélaga og líka öðrum samþykktum stefnum stjórnvalda á öðrum málefnasviðum, t.d. stefnu í jafnréttismálum, það væri hægt að koma þar inn. Ég man eftir að hafa unnið aðgerðaáætlun fyrir hinsegin fólk. Þar var komið með sérstaka aðgerðaáætlun varðandi hinsegin fólk á landsbyggðinni og hinsegin öryrkja. Það er því hægt að koma með inn í stefnurnar það sem lýtur að því að efla borgarstefnu og svo horfa á loftslagsmál. Það er þannig sem þetta er unnið. Það þarf ekki að tína allt til. Markmiðið er alveg skilgreint, þ.e. að þessi stærstu svæði verði efld. Það er skýrt markmið. Líka að samkeppnishæfni þeirra og hlutverk í byggðaþróun verði styrkt. Það er markmiðið og við ætlum að vinna að því með því að fela ríkisstjórninni að vinna að framkvæmd borgarstefnu. Og borgarstefnan verður þannig hluti af þessari samhæfingu stefna. (Forseti hringir.)

Mig langar að spyrja hv. þingmann: Hvaða texti á að fara inn í þetta til að ná þessu skýra markmiði um að efla þessi svæði?