borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma upp í andsvar við mig. Ég sé engan akk í því að starfsmenn ráðuneytisins séu að búa til texta og framleiða texta sem þingskjöl til að fá einhverja umræðu hér nema þau raunverulega þýði eitthvað. Er ég sammála því að efla samkeppnishæfni Íslands og þar af leiðandi samkeppnishæfni höfuðborgarsvæðisins og Akureyrar? Já, að sjálfsögðu. Ég sé bara ekkert um það akkúrat hér.
En af því að hv. þingmaður vísar hér í aðrar aðgerðaáætlanir sem við m.a. fjölluðum um í hv. allsherjar- og menntamálanefnd á síðasta þingi og hann var stundum sammála og hafði stundum ýmsar athugasemdir við — þar voru raunverulegar aðgerðir. Ég hefði haldið að það væri eðlilegra að ríkisstjórnin eða hæstv. ráðherra kæmi með framkvæmdaáætlun og væri ég svo til í að taka það til umfjöllunar. En vegna þess að hæstv. ráðherra nefnir hér sérstaklega samgöngumálin og samgönguáætlun, þá ætla ég bara að leyfa mér að signa mig, því að ég er þingmaður höfuðborgarsvæðisins og það fór ómæld vinna hjá bæði þingmönnum, ráðherrum og sveitarstjórnarfulltrúum á höfuðborgarsvæðinu að ná saman um eitthvað sem heitir samgöngusáttmáli. Það held ég að sé ofboðslega mikilvægt plagg, ofboðslega mikilvæg stefna um það hvernig við ætlum að leysa umferðarvanda á höfuðborgarsvæðinu.
Þá velti ég því líka fyrir mér: Bíddu, hvað þýðir það þá að við eigum allt í einu að skilgreina höfuðborgarsvæðið sem Hvítár-Hvítársvæðið? Þýðir það að við eigum að reyna að ná samstöðu með enn fleiri sveitarfélögum sem hafa ólíkari hagsmuni en sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu? (Innvrh.: Sameina sveitarfélög.) Já, ég get alveg tekið undir það með hæstv. ráðherra sem grípur inn í og segir að sameina eigi sveitarfélög. Það má örugglega sameina einhvers staðar sveitarfélög á landinu en þetta plagg fjallar reyndar ekkert um það og ýtir ekki undir þá áætlun hæstv. ráðherra.
En þetta fær mig raunverulega til að hræðast og ég spyr því hæstv. ráðherra: Er raunveruleg ástæða til þess á þessum tímapunkti að Alþingi Íslendinga fari að samþykkja einhverja ályktun með einhverjum skilgreiningum um að höfuðborgarsvæðið sé frá Hvítá til Hvítár? Hefur það til að mynda einhver áhrif á höfuðborgarsáttmálann?