157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

borgarstefna fyrir árin 2025--2040.

85. mál
[16:08]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Í stjórnarskránni segir að forseti Íslands skuli eiga heima í Reykjavík eða nágrenni. Öll stjórnsýsla landsins, miðstjórnarvaldsins, er í Reykjavík eða ráðuneytum, Alþingi Íslendinga er í Reykjavík o.s.frv. Þetta hefur að sjálfsögðu eflt mjög Reykjavíkurborg sem höfuðstað en ég vil minna á það sem hv. þm. sagði í lok ræðu sinnar: Á bara að setja lög en engan pening? Í lögum um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, sem samþykkt voru nú í sumar, er sérstaklega litið til jöfnunar vegna höfuðstaðarálags. Það kemur fram í greinargerð, með leyfi forseta:

„Til viðbótar hinu nýja almenna jöfnunarframlagi er lagt til að veitt verði nýtt sérstakt framlag til að mæta þeim áskorunum sem fylgja höfuðstöðum sem sinna þjónustu sem önnur sveitarfélög sinna í minna mæli, eða sinna ekki. Slík þjónusta er til að mynda flókin ... “ — o.s.frv.

Svo er vitnað í skýrslu þar sem kemur t.d. fram að slík þjónusta sé flókin og margþætt félagsleg þjónusta, t.d. fyrir heimilislausa og fátækt fólk, það sækir til Reykjavíkur, og líka varðandi menningarmál. Þessi tvö atriði. Það er tekið tillit til þessa í jöfnunarsjóði, þau fá sérstök framlög hvað þetta varðar. Í þessari skýrslu sem ég vitnaði í má nefna sveitarfélög sem í eru yfir 10.000 íbúar, þar var kostnaður Reykjavíkurborgar 380.000 kr. á hvern íbúa en á Akureyri var það 359.000 á hvern íbúa sama ár þegar lýtur að þessum þáttum. Næstu sveitarfélög á eftir voru langt fyrir neðan. Kostnaður Akureyrarbæjar á hvern íbúa árið 2015 vegna menningarmála var 57.000, kostnaður Reykjavíkurborgar er 44.000 á íbúa en önnur sveitarfélög voru með 21.000–28.000. Það er tekið tillit til þessa í jöfnunarsjóði af því að þau hafa aðrar skyldur. Það fylgja sannarlega peninga með, alla vega frá jöfnunarsjóði sem jafnar tekjur milli sveitarfélaga.

Ég verð bara að segja eins og er að sem landsbyggðarþingmanni finnst mér eðlilegt að Reykjavík líti á sig sem höfuðborg og sinni skyldum gagnvart landsbyggðinni sem höfuðborg. Eins og varðandi Reykjavíkurflugvöll, að ekki sé verið að grafa undan Reykjavíkurflugvelli, það kostar ekki mikinn pening o.s.frv. (Forseti hringir.) Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hann sé sammála þessu og ég vildi bara endilega benda á þetta varðandi jöfnunarsjóðinn. — Takk fyrir.