borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og einmitt þetta sem ég var svo mikið að velta fyrir mér með fjármagnið. Mér er alltaf létt ef ég er að fara að gera eitthvað og það er fjármagnað og ég veit hvernig það er fjármagnað. Hvort sem það er eitthvað í fjölskyldunni eða vinnu eða annað. Það er mikill léttir. Varðandi hvaða vanda ég tel mikilvægast að fjármagna þá held ég að það sé sannarlega félagslegur vandi. Ég held að það sé sá málaflokkur þar sem borgin þarf mest á stuðningi að halda (Forseti hringir.) og mér finnst við vera að stíga ákveðin skref í þá átt og fagna því.