borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Herra forseti. Ég held að það sé mikilvægt að hæstv. forseti ræði þetta innan flokks, einmitt málefni Reykjavíkurflugvallar. Þetta er lykilumræða sem varðar öryggishagsmuni allra Íslendinga, almannahlutverkið, sjúkraflugið og annað. Er þá ekki kominn tími til að koma einhverju alvöruviti í þetta plagg og að menn skilgreini t.d. þetta hlutverk? Þetta plagg hefur verið hér í einhverri umræðu í að verða áratug. Það var a.m.k. 2018 sem maður tók þátt í umræðu um stefnumótandi áætlun einmitt í lið C.14., þetta er hluti af þeirri byggðaáætlun. (Gripið fram í: C.4.)— C.4. Það eru sjö ár síðan. Það er áhugavert að heyra viðhorf hv. þingmanns varðandi flugvöllinn og að hann geri sér enga grein fyrir mikilvægi þeirrar starfsemi sem þar fer fram fyrir Ísland, íslenska hagsmuni og öryggi landsmanna. Ég held að það verði að dýpka þetta hjá hv. þingmanni töluvert mikið. Það er sorglegt að átta sig, það var kannski vitað, á því hvernig borgarstjórn Reykjavíkur hegðaði sér 2010–2014, meiri hluti borgarstjórnar (Forseti hringir.) í þessu máli á þeim tímapunkti. Það bara kemur allt fram hér. Þetta er hugsunarhátturinn og hann er ekki góður.