borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Virðulegi forseti. Viðhorf, ég sé ekkert að neinum viðhorfum. Ég hef alveg frá fyrstu tíð mætt lausnamiðaður. Ég held að það fyrsta sem ég hafi svarað þegar ég var spurður um þennan flugvöll, á þessi flugvöllur að vera eða á þessi flugvöllur að fara, hafi verið: Ég veit það ekki, ég hef aldrei flutt flugvöll. Ég veit ekkert hvernig menn fara að því, hvað það kostar eða hvernig það fer fram. Ég geri mér fyllilega grein, eftir störf mín hjá borginni, fyrir mikilvægi og öryggismikilvægi Reykjavíkurflugvallar, ekki síst varðandi sjúkraflugið. Við verðum einhvern veginn að leysa þetta mál til langframa, hvort hann eigi að vera eða hvort hann eigi að fara eða hvað eigi að gera.