borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Virðulegi forseti. Ég vil koma hér upp og segja varðandi það sem hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson sagði, að ég vildi ekki að það væru neinar skyldur, að það er bara alls ekki það sem ég er að segja. Ég er búinn að margsegja að mér finnst eðlilegt að það séu skyldur en ég vil að þær séu skýrt skilgreindar, ekki bara huglægt mat hvers og eins. Nú nær þessi stefna ekki bara til Reykjavíkur heldur líka til Akureyrar og stendur í þingsályktunartillögunni, með leyfi forseta:
„Samhliða mótun hlutverks Akureyrar sem svæðisborgar verði borgarsvæði hennar þróað og unnið að eflingu þess og stækkun í samstarfi ríkis og hlutaðeigandi sveitarfélaga.“
Mig langar að spyrja hv. þingmann varðandi þennan vanda sem mér finnst og hefur sýnst blasa við, að Akureyri sé svolítið komin að þolmörkum hvað varðar stækkun. Þetta er eitthvað sem ég hef velt fyrir mér og líka þessum sameiningaráformum sem ráðherrar hafa ámálgað stundum, að það ætti jafnvel að ýta eða þvinga minni sveitarfélög til að sameinast stærri. Mér leikur hugur á að vita hvað þingmanninum finnist um þessi mál.