borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Gnarr fyrir andsvarið. Varðandi það sem kom fram áðan í máli hv. þingmanns um Kjarnaskóg þá hef ég ekki heyrt að það væri verið að tala um þetta í alvöru. Ég geng nú um þarna nánast daglega allt sumarið og ég hef aldrei heyrt þetta þannig að það þarf að fá einhverjar frekari skýringar á því ef það á að taka Kjarnaskóg undir byggð.
Sá sem hér stendur hefur aldrei verið á þeirri línu að það eigi að þvinga fram sameiningar sveitarfélaga, svo því sé algerlega haldið til haga. Hins vegar er gríðarlega mikilvægt fyrir Akureyri sérstaklega að ná einhvers konar góðu samstarfi við Hörgársveit upp á að hugsa til framtíðar, bæði varðandi hafnir og hafnaraðstöðu og síðan er náttúrlega frábært byggingarland norðan við Akureyri með ströndinni sem er örugglega það heppilegasta í öllum Eyjafirði fyrir framtíðaruppbyggingu. En ég hef ekki viljað fara í þvinganir.
Varðandi það sem hv. þingmaður kemur inn á um Reykjavíkurborg og skyldu Reykjavíkurborgar þá held ég að ég hafi beint því svolítið til hæstv. innviðaráðherra áðan. Er þetta ekki rétti tíminn, ef þetta þarf að vera skýrt? Nú er hv. þingmaður í meiri hluta hér í þinginu. Þarf þá ekki bara að skilgreina þetta almennilega áður en plaggið er samþykkt? Hverjar eru skuldbindingar Reykjavíkur varðandi öryggismál þjóðarinnar í plagginu? Við erum mikið farin að ræða öryggismál, loksins, og það sem snýr að þeim og þetta er þá svolítil innanhúskróníka hjá ykkur í meiri hlutanum að ná fram. Það væri eðlilegast í heimi að klára það í svona vinnu. Það eru til plögg hjá ríkinu þar sem er talað um Reykjavíkurflugvöll og mikilvæg hans og annað. En ef þetta á að vera eitthvert svona — þetta er þingsályktunartillaga og til að fá þyngdina í málið þarf náttúrlega að taka á þessu. Ég held að ég sé búinn að svara því síðan með Akureyri og þolmörkin, sameiningaráform og Kjarnaskóg.