157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

borgarstefna fyrir árin 2025--2040.

85. mál
[16:45]
Horfa

Jón Gnarr (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir hans ágæta svar. Þetta sem ég heyrði með Kjarnaskóg var bara eitthvað sem ég heyrði. Ég hef ekkert eftir neinum staðfestum heimildum, það var bara einhver sem sagði þetta, hafði þetta í flimtingum. Ég sel það ekki dýrara en ég keypti það. Ég var þegar ég kom hingað upp með einhvern alveg frábæra punkt sem mér fannst bæði áhugaverður og skemmtilegur en nú er ég búinn að gleyma honum. Ég ekki hvað það var en það var mjög athyglisvert og lýtur að málefnum Eyjafjarðar. Ég bara man það ómögulega og bið þingheim velvirðingar á því.