157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

borgarstefna fyrir árin 2025--2040.

85. mál
[17:00]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Þessi umræða skapast vegna þess hvernig hv. þm. Jón Gnarr talaði hér um þessi mál áðan og opinberaði sig sem fyrrverandi borgarstjóri með hlutverk höfuðborgarinnar og höfuðborgarstefnunnar, að það þyrfti að tala skýrt. Auðvitað held ég allt skynsamt fólk átti sig á því að fólk þarf að komast á hátæknisjúkrahúsið alls staðar á landinu með sem hröðustum og bestum hætti. Það skilja allir. En ef hins vegar á að taka það þannig og ræða málin að þetta þurfi einhvern veginn að vera allt voðalega skýrt í öllum plöggum, sem auðvitað á að vera í stefnum ríkisins, get ég alveg tekið undir það með hv. þm. Jóni Gnarr að það er mikilvægt að hlutirnir standi. Þess vegna dugar kannski mögulega ekki umræðan ef þingmenn fara í þá áttina eins og hér er með sjúkrahúsið og annað, heldur að þetta sé skilgreint í vinnu hv. umhverfis- og samgöngunefndar sem fær plaggið til sín fyrir 2. umræðu, hvort það væri ekki hægt að koma því þannig fyrir að setja einhverja málsgrein sem myndi skýra þennan þátt þannig að við þyrftum ekkert að vera að ræða þetta meira, koma þessum þætti frá. Þetta er ekkert flóknara en það vegna þess að hér er oft bara umræða um eitthvað og það er verið að tala um eitthvað sem er ekki í plöggum af hálfu ríkisins og þar með er búinn til málstaður og ruglað í umræðunni.

Ég held að við hæstv. innviðaráðherra séum að mestu sammála um margt í plagginu. Ég er sammála honum um samkeppnishæfni við Reykjavík. Þetta er ástæðan fyrir að maður er að berjast fyrir þessum hlutum, flutningskerfi raforku inn á Akureyri, fyrir Akureyrarflugvelli, fyrir Háskólanum á Akureyri, fyrir sjúkrahúsinu, Verkmenntaskólanum, Menntaskólanum á Akureyri. Það er verið að búa til þessa samkeppnishæfni þannig að menn hafi einhverja framtíðarsýn til næstu ára og áratuga. En það ætti ekki að vera allt of flókið að bæta við einni málsgrein inn í nefnd til þess að laga aðeins (Forseti hringir.) og minnka þá mögulega misskilning í framtíðinni á plagginu.