borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Virðulegi forseti. Ég held að við séum um margt sammála varðandi þau atriði sem hér er komið inn á. Í skilgreiningunni um svæðisborg er talað um greiðar samgöngur milli landshluta. Ég hefði gjarnan viljað sjá það þegar fjallað er í b-lið um skilgreininguna Borgarsvæði Reykjavíkur og höfuðborgarsvæðisins. Þar er eingöngu talað um samgöngur innan þess svæðis en ég hefði gjarnan viljað sjá orðin „greiðar samgöngur milli landshluta“, svo það liggi fyrir. Vissulega má gera þar breytingu á.
Ég held að þetta sé mikilvægt plagg til þess að við getum unnið þessa aðgerð, aðgerð C.4. sem er borgarstefna í aðgerðaáætlun um byggðaáætlun. Þetta er byggðamál, þetta er byggðamál fyrir 87% íbúanna og tenging við landsbyggðina líka. Hún skiptir að sjálfsögðu máli. Ég held að það liggi í þeim atriðum sem ég hef fjallað um hér, m.a. í kaflanum um samgöngur og svo heilbrigðismál. Ég er bara að leggja þetta fram hér og Alþingi mun álykta um að fela ríkisstjórninni að vinna að framkvæmd þessarar stefnu. Ég fæ framtíðarsýnina og meginmarkmiðin sem standa í þessu plaggi.
Við erum líka með lykilviðfangsefni sem við munum sannarlega fara í gegnum, öll fimm, a–e-lið: a-liður er atvinnulíf, fjárfestingar og nýsköpun, b-liður er alþjóðleg samkeppnishæfni, sem er gríðarlega mikilvægt að vinna að. Ég er þegar kominn með minnisblað um samkeppnishæfni siglinga í landinu til ríkisstjórnar. C-liður er innviðir og umhverfi, d-liður er heilbrigðis- og félagsmál og e-liður er menntun og menning.
Svo verður innviðaráðherra falið að koma á formlegum samstarfsvettvangi ríkisins og borgarsvæðanna sem stuðli að því að markmiðum borgarstefnu verði náð. Þetta er það veganesti sem ég myndi fá frá Alþingi verði þingsályktunartillagan samþykkt.
Að öðru leyti þakka ég fyrir góðar umræður og vænti þess að þetta fái góða þinglega meðferð.