stafrænn viðnámsþróttur fjármálamarkaðar.
Forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um stafrænan viðnámsþrótt fjármálamarkaðar. Með frumvarpinu er lagt til að lögfest verði reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um sama efni, sem ég vísa hér eftir til sem reglugerðarinnar. Frumvarpið var lagt fram á síðasta löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga. Það er nú lagt fram að nýju, að mestu óbreytt, en tekið hefur verið tillit til nefndarálits og breytingartillagna efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis og er breytingum lýst í 5. kafla greinargerðarinnar með frumvarpinu.
Reglugerðin gildir um fjölbreyttan hóp aðila á fjármálamarkaði og mjög lítið svigrúm er til að víkja frá efnisákvæðum hennar. Hún kveður á um að virk og viðeigandi áhættustýring sé viðhöfð í fjármálastarfsemi svo tryggja megi öflugan stafrænan viðnámsþrótt og lágmarka rof á mikilvægri þjónustu. Kröfur skulu þó lagaðar að stærð og eðli rekstrar í samræmi við meðalhófsreglu þannig að vægari kröfur eru gerðar til smærri fyrirtækja. Þá eru tilteknir aðilar sem ekki ná stærðarviðmiðum undanskildir gildissviði reglugerðarinnar.
Reglugerðin gerir ítarlegar kröfur um áhættustýringu og viðbúnað. Umgjörð net- og upplýsingaöryggismála skal skjalfest, uppfærð reglulega og vera háð virku eftirliti stjórnar. Áætlanir um samfelldan rekstur skal æfa og uppfæra reglulega og leggja mat á áhættu og áhrif hugsanlegra netárása á rekstur. Ábyrgð stjórnar og framkvæmdastjórnar á því að kröfum reglugerðarinnar sé fylgt er gert hátt undir höfði. Stýring upplýsingatækniáhættu er t.d. ekki verkefni sem eingöngu verður lagt á herðar og ábyrgð öryggisstjóra. Skylt er að standa reglulega fyrir fræðslu fyrir starfslið og stjórn um netöryggi og hættur sem steðjað geta að starfsemi vegna notkunar á upplýsingatækni.
Forseti. Efniskröfur frumvarpsins ná til fyrirtækja sem veita aðilum á fjármálamarkaði upplýsinga- og fjarskiptatækniþjónustu. Þannig eru meginreglur settar fram í reglugerðinni um vöktun og stýringu áhættu sem steðjað getur að fjármálastarfsemi vegna þjónustu utanaðkomandi. Með reglugerðinni er sameiginlegum eftirlitsramma komið á gagnvart allra stærstu þriðju aðilum sem veita upplýsinga- og fjarskiptatækniþjónustu á Evrópska efnahagssvæðinu.
Forseti. Mjög lítið svigrúm er til að víkja frá efnisákvæðum reglugerðarinnar, en ég vil þó vekja athygli á tvennu:
Í fyrsta lagi er lagt er til að Byggðastofnun, Lánasjóður sveitarfélaga ohf. og Náttúruhamfaratrygging Íslands verði undanþegin gildissviði frumvarpsins. Þær stofnanir hafa ekki verið meðhöndlaðar í löggjöf með sama hætti og lánastofnanir og vátryggingafélög vegna sérstöðu sinnar en sæta eftirliti og ákveðnum vægari kröfum að sumu leyti.
Í öðru lagi er lagt til að kveðið verði á um sambærilegar kröfur til innlendra lífeyrissjóða og gerðar eru til helstu aðila á fjármálamarkaði með reglugerðinni. Lífeyrisjóðirnir starfa á grundvelli laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997. Þessi tillaga er gerð með hagsmuni sjóðfélaga í huga. Í ljósi þess að um landsbundna tilhögun ræðir þykir betur fara á að koma ákvæðinu fyrir í lögum um lífeyrissjóði heldur en í lögum sem innleiða reglugerðina.
Með frumvarpinu eru loks lagðar til breytingar á öðrum lögum til samræmis við efni reglugerðarinnar og tilheyrandi tilskipunar.
Forseti. Talið er að heildaráhrif frumvarpsins verði jákvæð. Fyrirhuguð lagasetning mun hafa áhrif á flesta aðila á fjármálamarkaði og stuðla enn frekar að öflugum innviðum fjármálakerfisins. Innleiðing reglugerðarinnar mun líklega hafa í för með sér kostnað fyrir fyrirtækin í aðdraganda gildistöku fyrirhugaðra laga, einkum vegna vinnu við rýni og uppfærslu ferla og samninga. Óhjákvæmilegt er að hver aðili á fjármálamarkaði móti sjálfur eigin stefnu í upplýsingatæknimálum, vandi val á eigin þjónustuveitendum og takist á herðar þá ábyrgð að veita birgjum sínum viðeigandi aðhald. Lögfesting reglugerðarinnar felur í sér aukin verkefni fyrir Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands. Mögulegum viðbótarkostnaði vegna aukinna verkefna Seðlabankans verður mætt með hækkun eftirlitsgjalds samkvæmt lögum um greiðslu kostnaðar vegna opinbers eftirlits með fjármálastarfsemi og skilavald.
Reglugerðin var samþykkt í desember 2022 og kom til framkvæmda í aðildarríkjum Evrópusambandsins í janúar á þessu ári. Netöryggi er víða í brennidepli og hafa öll EFTA-ríkin innan EES lagt áherslu á skjóta upptöku reglugerðarinnar í EES-samninginn og innleiðingu í landsrétt. Í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um upptöku reglugerðarinnar í EES-samninginn er gert ráð fyrir allt að tólf mánaða svigrúmi EFTA-ríkjanna til innleiðingar í landsrétt. Hér er lagt til að gildistaka verði 1. janúar 2026.
Forseti. Ég hef nú gert grein fyrir efni frumvarpsins í stórum dráttum og legg til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar.