stafrænn viðnámsþróttur fjármálamarkaðar.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Þetta var einmitt fyrsta spurningin sem við spurðum okkur: Erum við að gullhúða? Af því að þetta skiptir máli. Inn í efnahags- og viðskiptanefnd kemur jafnan mikið af innleiðingarmálum og við viljum tryggja að við séum ekki að fara of langt. Það er mál á eftir á dagskránni þar sem okkur stóð til boða að ganga lengra heldur en frumvarpið gerir ráð fyrir og nefndin ræddi það sérstaklega, en við ræðum það kannski hérna á eftir.
Þetta er alveg rétt sem hæstv. ráðherra segir; við erum auðvitað einstök að því leyti hvað við erum smá. Það sem við gerðum líka er að við settum lífeyrissjóðina undir þessa löggjöf, sem er auðvitað séríslenskt fyrirbæri, lífeyrissjóðirnir eru svo sterkir hér. Það er gert í fullri sátt við lífeyrissjóðina og þeir vilja vera undir þessari löggjöf af því að það skiptir máli fyrir þá og þeirra eftirlitsaðila að þeir séu með sterka og öfluga löggjöf sem fylgist með þeirra störfum. Ef þetta fer eins og málið er lagt fyrir þá held ég að allir geti unað við sitt. Ég myndi samt hvetja þessar þrjár stofnanir, þessar litlu, til að huga vel að sínum stafrænu öryggismálum af því að við lifum í þannig heimi að við verðum að taka þessu alvarlega.