157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

stafrænn viðnámsþróttur fjármálamarkaðar.

99. mál
[17:16]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég vil þakka formanni efnahags- og viðskiptanefndar fyrir annað mjög gott svar og taka jafnframt fram að ég tek undir þau orð hennar að stafrænn viðnámsþróttur, öryggi þessara aðila hjá okkur, skiptir okkur gríðarlega miklu máli. Lífeyrissjóðirnir eru þó í annarri stöðu heldur en þeir sjóðir sem nefndir voru hér áðan. Allir hinir aðilarnir heyra með einum eða öðrum hætti undir hið opinbera. Vörnum gegn netvá eða annarri áhættu sem sérstaklega er tekið á í þessum reglum hvað varðar einkaaðila, en lífeyrissjóðirnir eru í þessum skilningi einkaaðilar, er að einhverju leyti þegar sinnt af miðlægu eftirliti hins opinbera. En ég tek hjartanlega undir orð hv. þingmanns hvað varðar lífeyrissjóðina; þetta varðar líka ytri ásýnd þeirra og ekki bara öryggismál.