verðbréfun.
Forseti. Við erum að ræða mál sem var nú, held ég, ágætissamstaða um á síðasta þingi. Hins vegar var eitt sem ég nefndi og mig langar aðeins til að ræða við hæstv. ráðherra, en það er kaflinn um stjórnvaldssektir. Í ljósi smæðar eftirlitsskyldra aðila á Íslandi samanborið við í Evrópu þá fyndist mér eðlilegt að það yrði tekið tillit til þess í heimildum um stjórnvaldssektir. Það virðist samt vera þannig að þetta hafi verið beint þýtt, þ.e. það hafi bara verið stuðst við gengi á evru eins og þetta var í reglugerðinni þannig að úr verður að einstaklingar sem vinna hjá þessum aðilum geta verið sektaðir um frá 100.000 kr. til allt að 630 millj. kr. Það finnst mér ansi breitt bil. Svo kemur fram í 9. gr. að stjórnsýsluviðurlögum og öðrum ráðstöfunum vegna brota verði beitt óháð því hvort brot eru framin af ásetningi eða gáleysi. Þarna kann einhver að segja: Það mun enginn beita 630 millj. kr. sekt á einhvern einstakling sem vinnur í banka. Þá vil ég bara minna á ýmsa dóma sem féllu eftir bankahrun og við höfum alveg reynslu af því að það hafa verið nýttar allar heimildir sem fyrir eru. Þarna finnst mér vanta skýrleika í löggjöf. Mér finnst ekki gætt að meðalhófi og mér finnst ekki gætt að stærð þess markaðar sem við búum við.
Mig langaði bara að heyra afstöðu ráðherra fyrst þessu var ekki breytt, þó að aðeins hafi verið komið inn á þetta áður: Er hann mjög mótfallinn af þessum breytingum eða finnst honum þetta eitthvað sem væri tilvalið fyrir efnahags- og viðskiptanefnd að skoða?