157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

verðbréfun.

100. mál
[17:24]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir alveg ljómandi góða spurningu. Það er ljóst að þetta svigrúm er nokkuð vítt og ég tek undir með að það virkar óhóflega vítt þegar því er lýst. Það verður hins vegar að taka tillit til þess að verðbréfun lá til grundvallar því meiri háttar áfalli sem var fall Lehman bankans í Bandaríkjunum. Þar var um að ræða verðbréfaðar stöður sem fóru algjörlega úr böndum og tjónið sem hægt er að vinna ef illa er staðið að þessum afurðum getur því verið umtalsvert. Nú kom fram í framsöguræðu minni að þessir gjörningar eru mjög fátíðir á Íslandi og raunar ekki í fljótu bragði að sjá að það sé ástæða til að ætla að þeir verði algengir, einfaldlega vegna þess hversu grunnur markaðurinn er. Maður gæti þess vegna haldið því fram að það væri skynsamlegt að settur yrði einhver toppur á bilið. En það er svolítið erfitt að átta sig á hversu umfangsmikil starfsemin yrði og það er ljóst að tjónið, ef ekki er vandlega farið með þessa gjörninga, getur verið verulegt. Það sýna dæmin. Það er erfitt fyrir mig að segja hvort efri endinn sé óhóflegur. Hann er óhóflegur sannarlega í ljósi núverandi stöðu en þessi lög munu væntanlega standa um eitthvert skeið.

Ég hvet efnahags- og viðskiptanefnd til að kynna sér hvort ástæða sé til að ætla að þessar stöður gætu orðið eitthvað verulegar og þá í hvaða umfangi eða gætu verið ef ætlunin er að gera breytingu á efri mörkum.