157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

verðbréfun.

100. mál
[17:26]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka svarið og ég ætla að vera alveg heiðarleg; ég spurði einnig að þessu til þess að vekja hæstv. ráðherra til umhugsunar þegar næstu frumvörp koma, því þetta er eiginlega svona í mjög mörgum frumvörpum sem hafa verið hérna áður. Mér finnst ekki sjálfsagt að þetta sé svona og við ættum að huga að þessu. Ég held jafnvel að við ættum að skoða í efnahags- og viðskiptanefnd að það sé skýrara hvenær aðili sé í þessum efri mörkum. Eins kemur fram í frumvarpinu orðalag um að það sé tímabundið hægt að víkja starfsmönnum frá störfum, Fjármálaeftirlitið geti gert það. Allt svona er svolítið óheppilegt, því hvað þýðir tímabundið? Ég er ekki að segja að ég treysti þeim ekki en ég er áhugamanneskja um skýrleika laga fyrir borgara landsins. Að öðru leyti þá er ég ekki með aðra spurningu þannig að hæstv. ráðherra ræður um hvað hann tjáir sig.