157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

verðbréfun.

100. mál
[17:27]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að um mikilvæga umræðu sé að ræða og ég ætla að velja að koma hingað upp og tjá mig um hana þó að engin spurning hafi legið fyrir. Fjármálamarkaðurinn er að þessu leyti snúinn. Við vitum af biturri reynslu að tjón af slæmri ákvarðanatöku á þessum markaði getur verið verulegt. Við vitum að umfang íslenskra banka og annarra fjármálafyrirtækja er frekar lítið samanborið við nágrannalöndin. Ég held þess vegna að það að setja eina reglu eða að vera með eina sekt kæmi aldrei til greina. Það verður að vera eitthvert samhengi milli tjónsins og refsinganna því að þrátt fyrir allt er það þannig að það litla sem ég kann í afbrotafræði segir að eiginlega einu glæpirnir sem þú getur hindrað með refsingum eru svokallaðir hvítflibbaglæpir þar sem sá sem glæpinn fremur, fremur hann fullvitandi hvað hann er að gera, hafandi reiknað út að það borgi sig. Þá hefur refsingin fælingarmátt. En það er alveg rétt sem hv. þingmaður segir, þarna þarf auðvitað að gæta meðalhófs.