verðbréfun.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyrir góða framsögu um þetta frumvarp til laga um verðbréfun sem er endurflutt mál frá síðasta þingi eins og hv. varaformaður efnahags- og viðskiptanefndar, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, fór yfir. Það er alveg rétt sem hún nefndi að þetta var unnið í mikilli sátt í nefndinni í vor. Það var einmitt þessi þáttur sem við stöldruðum sérstaklega við, stjórnvaldssektirnar. Það barst bara ein umsögn um málið og hún var frá Seðlabanka Íslands sem var mjög hlynntur þessu máli en lagði það til við nefndina að ganga lengra þegar kæmi að stjórnvaldssektum. Við hugsuðum málið vel og horfðum til Noregs líka í því skyni og eftir íhugun nefndarinnar ákváðum við að ganga ekki lengra en reglugerðin gefur til kynna. Það er líka það að maður vill ekki vera að leggja of miklar kvaðir á fyrirtæki og stofnanir en þurfa þykir og það var með þeim huga sem við ákváðum að fara bara eftir því sem ráðuneytið lagði til og ganga ekki lengra í stjórnvaldssektum. Það var svo sem eini þáttur þessa máls sem við stöldruðum sérstaklega við og íhuguðum sérstaklega, að öðru leyti var málið unnið í mikilli sátt. Eins og ég sagði áðan um frumvarpið um stafrænan viðnámsþrótt þá veit maður ekki hvað kemur úr umsagnarferlinu núna. Það gætu komið inn nýir vinklar og þá munum við í nefndinni auðvitað taka því vel og vinna að málinu faglega eins og við gerðum í vor. En ég vil enn og aftur þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna á þessu máli.