157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

verðbréfun.

100. mál
[17:40]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á að taka undir með hæstv. ráðherra. Ég held þetta sé alveg snúið og að það sé rétt hjá honum að mál geti verið óveruleg og veruleg. Þess vegna truflar mig mest að það megi beita þessum viðurlögum óháð því hvort brot séu framin af ásetningi eða gáleysi án þess að gera greinarmun á einhvers konar rétti borgaranna, vegna þess að þetta eru eiginlega sitthvor brotin, finnst mér. Auðvitað getur brotið sem framið er af gáleysi, ég átta mig alveg á því, valdið miklum skaða. Held ég að Fjármálaeftirlitið hafi farið fram úr sér í einhverju? Ég ætla ekki útiloka það.