afmörkun á uppbyggingu vindorkuvera.
Virðulegi forseti. Ímyndaðu þér íslenska náttúru, óspillta fagra víðáttuna alla. Við erum að keyra um landið. Ímyndaðu þér hana teppalagða háreistum vindmyllum, háreistum vindmyllum sem gnæfa yfir fjöll og dali og skila þjóðinni takmörkuðum arði. Þetta er ekki framtíðarsýn sem við viljum og það er ástæðan fyrir því að ég legg fram þessa þingsályktunartillögu hér í dag, þingsályktunartillögu um að breyta stefnu Íslands í vindorkumálum til hins betra, taka önnur skref heldur en við erum að fara í dag. Þá er kannski spurningin: Af hverju er þessi þörf? Jú, við erum í dag með yfir 40 vindorkuverkefni sem hafa sprottið upp eins og gorkúlur um allt land. Hafið í huga að þessi verkefni gætu allt eins verið 400 undir núverandi regluverki. Það er nefnilega málið að við erum að sjá hérna birtast gjörbreytingu á orkulandslagi í samræmi við orkulöggjöf Evrópusambandsins, sem birtist í því að fjárfestar koma hingað til lands og vilja reisa vindorkuver án þess að við höfum mótað okkar regluverk og framtíðarsýn. Þá er það regluverk um skipulagsmál, regluverk um ábata af þessari auðlind sem vindurinn er, því að okkar orkusaga er í raun og veru samfélagssaga. Það er saga þar sem eignarhald auðlinda hefur verið á hendi hins opinbera en er að breytast og birtist í vindorkunni. Það er saga þar sem ábatinn af þessari auðlind — af þessum orkuauðlindum sem við eigum og eru svo dýrmætar og verðmætar fyrir okkar samfélag og atvinnulíf — hefur einmitt fyrst og fremst skilað sér í gegnum eignarhaldið. Við erum þar að tala um að eignarhald á virkjunum og arðgreiðslur hafa komið í gegnum fyrirtækin sjálf eins og Landsvirkjun. Þetta er umhverfi sem hefur alls ekki verið mótað. Þegar við erum að tala um fjárfestingar einkaaðila í orkugeiranum og í stóru myndinni vil ég meina að í raun og veru hafi umræða um breytingu á því að við séum með blandað kerfi, þar sem við erum með miklu fleiri framleiðendur, ekki fengið nægilega orðræðu.
Það var áður meðvituð ákvörðun að virkjanir landsins skyldu vera í eigu hins opinbera en að notendur skyldu vera fjölbreytt fyrirtæki sem störfuðu um allt land. Þetta hefur verið rauði þráðurinn í okkar orkusögu og hann er í raun og veru að breytast eins og staðan er í dag. Það sem gerir vindorkuna sérstaklega krefjandi í samhengi við t.d. þætti eins og náttúruvernd er að vindorka er óstaðbundin. Það þýðir að hún geti risið nánast hvar sem er á meðan framkvæmdir sem tengjast vatnsafli og jarðhita hafa verið að rísa í samhengi við árfarvegi eða jarðhitasvæði. Það er kannski meginástæða þess að við höfum séð svona miklar deilur, vegna þess að verkefnin spretta upp í bakgarði hjá fólki. Ég var við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri um daginn þar sem var verið að ræða ólík vindorkuverkefni á þeim slóðum. Fólk er að verða vitni að verkefnum í undirbúningi án þess að hafa verið með í þeirri ákvarðanatöku og fólk er að eyða endalausum tíma í umsagnir, í baráttu um verkefni sem það hefur aldrei tekið þátt í frá upphafi. Þetta er að reynast venjulegu fólki mjög krefjandi.
Þá komum við einmitt að skilvirkni af því að mikið er rætt um að hægt sé að byggja upp orkuvirkjanir á skilvirkari hátt. Ég spyr: Er það skilvirkt að vera með tugi verkefna í ólíkum ferlum og takast á um þau svo árum skiptir eða er betra að ákveða örfá verkefni og hraða þeim þá sérstaklega? Er það ekki skilvirkari leið? Nú þegar er búið að samþykkja tvo vindorkugarða við Búrfell og Blöndu eða Búrfellslund og Blöndulund. Ég vil líka meina að umræðan um orkumálin í samhengi við vindorku hafi í raun og veru ekki þroskast að fullu leyti því að við erum ekki með þennan orkugjafa í okkar landslagi. Sé hann hins vegar byggður upp af skynsemi þannig að vindorkuverin séu nægjanlega stór til að vera hagkvæm, byggð upp í nálægð við tengivirki og hugsuð til að jafna lykillón, þá getur þessi auðlind nýst vel. En sú stefna sem er til staðar í dag og sú lagaumgjörð sem er til staðar í dag er ekki ákjósanleg fyrir framtíð landsins. Hún er í raun og veru stjórnlaus.
Hvort auðlindin vindur verður til ábata fyrir samfélagið í samhengi við arðgreiðslur, eins og ég kom inn á áðan, er síðan eitthvað sem þarf að ræða sérstaklega og útfæra sömuleiðis. Mig langar líka að koma inn á vindorku á hafi sem er hluti af því sem lagt er til undir þessari þingsályktun. Við þurfum að spyrja okkur spurningarinnar: Ætlum við að gefa hafsvæði? Ætlum við að gefa hafsvæði til þeirra sem eru fyrstir að óska eftir leyfum eða ætlum við að taka meðvitaða ákvörðun um að kortleggja betur okkar landgrunn, ákveða með strategískum hætti út frá hagsmunum sjávarútvegs og annarra greina hvort það séu hafsvæði sem komi til greina fyrir vindorkunýtingu og fara þá leið eins og aðrar þjóðir hafa farið að bjóða þau út og hafa skýran ábata á nýtingartíma, sem rennur til samfélagsins? Það er jafn mikilvægt að vanda til verka hvað varðar vindorku á hafi og vindorku á landi. Ef við náum utan um þetta núna, að mynda góða, heilsteypta stefnu byggða á varfærni og hugsun um hagkvæmni sömuleiðis að leiðarljósi, þá er ég sannfærð um að vindorka getur á ákveðnum stöðum, ólíkum landshlutum, orðið viðbót við okkar orkukerfi. Sú staða sem er í dag er þó ekki til þess fallin að ná þeim árangri.
Að lokum langar mig aðeins að tala um markmið sem ólíkar ríkisstjórnir hafa í byggðamálum, í loftslagsmálum og í atvinnumálum almennt. Nú er ríkisstjórnin að tala um atvinnustefnu, að setja ákveðin markmið á oddinn og orkuöflun er eðlilega hluti af því samhengi. Við verðum samt að átta okkur á að það er ekki lengur þannig í dag að þú getir farið í ákveðna orkuframkvæmd og tryggt með því ákveðna notkun eða störf eins og áður var ef við horfum t.d. á orkusöguna í samhengi við álver eða annað slíkt. Við erum í dag með markaðsleið í orkumálunum eftir innleiðingu orkupakkanna. Það þýðir að við getum aukið framleiðslu en hver það verður sem kaupir orkuna er eitthvað sem er ekki, eins og regluverkið er í dag, í höndum stjórnmálanna. Þess vegna er mikilvægt og mikil ábyrgð fólgin í því hjá stjórnmálamönnum að tala um aktífa byggðastefnu í samhengi við orkumál, eða aktífa loftslagsstefnu og árangur í samhengi við orkumál, því að sannleikurinn er sá að stjórnmálamenn stýra því ekki hver kaupir orkuna eða hvort hún nær einhverjum ólíkum pólitískum markmiðum eða kosningaloforðum. Það er orkumarkaðurinn og þeir sem gera samninga á frjálsum markaði sem ákveða það. Þetta er umræða sem við þurfum að eiga sömuleiðis, sérstaklega í samhengi við atvinnustefnu, því atvinnustefna tengd orkumálum er einungis orð á blaði ef ekki er rýnt í þessa þætti og hvatar skapaðir, sérstaklega fyrir landsbyggð í þessu samhengi.
Að lokum vil ég segja að í Noregi var farið í uppbyggingu vindorku með tvö markmið í huga. Það var sagt við íbúa á ólíkum stöðum: Við ætlum að fara í þróun vindorku til að tryggja loftslagsmarkmiðin, að við náum árangri þar, Þá var farið í þróun vindorku og sagt við fólk: Heyrðu, við ætlum að ná árangri í orkuöryggi. Farið var af stað í ólík verkefni og niðurstaðan var að um 70% af orkunni sem framleidd var úr þessum vindorkugörðum fór til stækkunar núverandi álvera og annarra stórra notenda. Eðlilega, hefði kannski einhver getað sagt, því að það voru þeir aðilar sem gátu borgað best. Það þýddi hins vegar að þau markmið sem stjórnmálin höfðu lofað íbúunum náðust ekki. Það er sú pólitík sem við skulum ekki stunda hér í samhengi við þróun þessa orkugjafa. Ef það á að fara í ákveðin verkefni með ákveðin markmið í huga skulum við gera okkur grein fyrir að það þarf að skapa ákveðna hvata til að hægt sé að svo verði. Annars er ávísunin skýr á deilur líkt og í Noregi þar sem stærsti vindorkugarður Noregs endaði í dómsmáli og deilur risu um allt land. Gleymum því ekki að slíkar deilur eru kostnaðarsamar fyrir samfélag. Þær eru kostnaðarsamar fyrir orkuframleiðendurna sem líða þá fyrir þær deilur og seinkanir sem þeim fylgja og þær eru kostnaðarsamar fyrir samfélagið, trúverðugleika stjórnmálanna og í raun samfélagið allt.
Þannig að, virðulegi forseti, ég vona að það verði jákvætt tekið í þessa þingsályktunartillögu. Þessi umræða er mikilvæg og ég enda á orðunum: Ef við gerum þetta rétt, þá er framtíðin okkar.