157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

afmörkun á uppbyggingu vindorkuvera.

71. mál
[19:18]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir hennar framsögu hér. Ég ætla nú samt að fá að vera ósammála hv. þingmanni þegar hún segir að málaflokkurinn sé stjórnlaus. Þessi vindmylluverkefni eru, held ég, nánast öll komin inn í rammaáætlun. Þessi verkefni eru öll með þeim hætti að margra ára rannsóknir liggja að baki, radarrannsóknir, bæði láréttar og lóðréttar. Það á eftir að fara í umhverfismat. Þetta er ekki stjórnleysi. Öll þessi verkefni eru í ferli. Ég velti því fyrir mér, og það er einmitt í umhverfismatinu, að ef einhver á eyju í Breiðafirði og ætlar að setja upp vindmyllur fær hann líklega nei þar af því að það er ofan í arnarhreiðrunum. Það eru slíkir þættir sem eru akkúrat teknir fyrir í umhverfismati og í meðferð um rammaáætlun líka.

Ég held að við öll hér inni séum sammála um að við eigum Landsvirkjun, sem er með um 82% af framleiddri orku í landinu. Hún er í eigu íslenska ríkisins sem heldur á því hlutabréfi fyrir hönd þjóðarinnar. Ég held að um það sé bara þverpólitísk sátt um að svo sé. Af því að hér er talað um eignarhald og maður er að reyna að lesa á milli línanna langar mig að spyrja hv. þingmann tvíþættrar spurningar: Er hv. þingmaður á móti erlendu eignarhaldi, erlendri fjárfestingu í þessum geira eða er hv. þingmaður almennt bara á móti eignarhaldi einkaaðila á orkuframleiðslu, hvort sem það eru virkjanir eða vindmyllur?