157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

afmörkun á uppbyggingu vindorkuvera.

71. mál
[19:20]
Horfa

Flm. (Halla Hrund Logadóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir frábærar spurningar sem eru grundvallarspurningar. Af hverju ég er að leggja fram þessa þingsályktun? Akkúrat til að ræða þessi atriði. Hv. þingmaður segir: Þetta er ferli, þetta er ekki stjórnlaust. Það hlýtur þó að vera eitthvað að ferlinu ef þú þarft ekki einu sinni leyfi landeiganda til að leggja til vindorkugarð á hans eigin landi. Það er staðan í dag og þess vegna er hægt að keyra áfram með óeðlilegum hætti. Eins og ég sagði áðan er vindorkan óstaðbundin sem gerir myndina miklu flóknari en í öðrum orkugjöfum.

Varðandi eignarhaldið ætla ég að segja við hv. þingmann að ég tel að það hafi vantað umræðu um þessa grundvallarstefnubreytingu — því að eins og hann sagði hefur eignarhaldið á Landsvirkjun verið í mjög þverpólitískri sátt — þ.e. þessa umræðu sem ég er m.a. að kalla eftir með þessari þingsályktunartillögu; umræðu um það hvort almenningur í landinu, fólkið í landinu, vilji að við gerum breytingu í átt að fjölbreyttara eignarhaldi auðlinda. Það sem ég get alveg sagt að sé grundvöllur, ef það á að vera fjölbreyttara eignarhald í vindorku, sem ég set spurningarmerki við, ég tel alla vega að við eigum að byrja á þessum tveimur verkefnum sem er búið að leyfa í rammaáætlun, þá þarf eðli málsins samkvæmt að tryggja að ábatinn skili sér til þjóðarinnar. Því að alveg eins og hv. þingmaður kom inn á mun ábatinn ekki skila sér í gegnum hlutabréfseignina í fyrirtækinu sjálfu. Þá þarf að hugsa það upp á nýtt.