afmörkun á uppbyggingu vindorkuvera.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur kærlega fyrir framsögu í þessu máli. Ég get auðvitað byrjað á því að fara yfir að í meginatriðum þá tel ég þetta vera mikilvægt mál, að það sé settur skýr rammi utan um þennan málaflokk sökum þess að það er rétt, eins og þingmaðurinn segir, að þarna er bara verið að vinna með náttúru landsins og þjóðarinnar og nýtingu á auðlind sem er vindurinn. Það er bara með þeim hætti í dag og hefur verið á undanförnum árum að lagaramminn er kannski ekki nógu skýr hvað þetta varðar, hvernig á að standa að þessu. Hv. þingmaður nefnir stöðuna t.d. í Noregi og þeirri uppbyggingu sem þar hefur verið í gangi á undanförnum árum. Ég held að það sé afar mikilvægt að við lærum af þeirri reynslu og horfum á það sem þar er gert. Vítin eru til að varast þau.
Það sem ég velti fyrir mér og hefur svo sem komið fram núna er eignarhaldið, ég vildi vita nánar um afstöðu þingmannsins til þess en það hefur hins vegar alveg komið fram. Mig langar samt sem áður að heyra afstöðu þingmannsins til málsins almennt hvað varðar það að nýta vindorkuna af því að nú veit ég að þingmaðurinn hefur mjög mikla reynslu af þessum málaflokki. Er þetta skynsamleg leið? Er þetta eitthvað sem þingmaðurinn telur skynsamlegt að nýta?