afmörkun á uppbyggingu vindorkuvera.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir margar góðar spurningar. Ég tek undir að það er grundvallarmál að læra af reynslunni og þar getum við lært af fleiri ríkjum en Norðmönnum. Vegna þess að hv. þingmaður spyr varðandi nýtingu á þessum orkugjafa almennt, þá er svarið að vindorka getur nýst á Íslandi. Ég tel að það séu tækifæri til að gera það á vandaða vegu en til þess þarf að þróa löggjöfina betur því að við erum að vinna innan annarrar auðlindar sem við eigum, sem er náttúran. Ég veit að við tökum henni kannski sem sjálfsögðum hlut. Ég hef stundum sagt að ég ferðaðist um allan heiminn til að finna fallegustu staðina og fann þá svo þegar ég lenti aftur hérna heima. Við eigum ótrúlega náttúru og kannski er þróun vindorku stærsta náttúruverndarmál okkar tíma í samhengi við jafnvægi á milli nýtingar og verndar. Þess vegna erum við í dauðafæri með að vinna þessi mál rétt. Ég held að við þurfum að taka dálítið skref til baka, í staðinn fyrir að vera með allt undir varðandi hvar vindorkuver mega vera og færa okkur yfir í hvar þau eiga að vera. Það rímar líka við sjónarmið um skilvirkni og sé þetta hugsað á vandaða vegu þá held ég að það séu ýmis tækifæri. En ég legg áherslu á að þetta ættu að vera örfá verkefni. Þau ættu að vera hagkvæm í stærð ef þau eiga ekki að hækka raforkukostnað og eðli málsins samkvæmt hafa þau verið hugsuð í samhengi við lónin okkar. Ég tel að reynslan af þessum tveimur verkefnum sem eru nú í þróun muni færa okkur nær því að taka skynsamlegar ákvarðanir í stærra samhengi.