afmörkun á uppbyggingu vindorkuvera.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Það er auðvitað mjög ánægjulegt að við séum komin á þann stað að nú þegar hefur umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra birt áformaskjal um þetta málefni, í raun nákvæmlega um þessi atriði þar sem er verið að fjalla um vindorkuna og nýtinguna og hvaða áherslur eiga að vera þar að baki. Það skiptir gríðarlega miklu máli að vernd náttúrunnar, íslenskrar náttúru, sé það sem ráði för, að það sé passað upp á þá þætti og við göngum ekki of nærri því sem við búum við í dag. Mín persónulega skoðun varðandi eignarhaldið og þær framkvæmdir sem mögulega verður farið í er að ég tel skynsamlegt að það sem við framleiðum af raforku sé gert af samfélaginu, að það sé gert af þjóðinni eða fyrirtækjum í okkar eigu. Persónulega finnst mér það skynsamlegast og sterkast. Hins vegar erum við með aðeins blandaða framleiðslu í dag.
Síðan er annað sem skiptir líka miklu máli og það er að þjóðin njóti góðs af þessari auðlind, að hún fái ákveðna rentu af því sem raforkuframleiðslan skilar. Auðvitað skiptir það máli líka fyrir nærumhverfið þar sem orkan er framleidd. Hagsmunir nærsamfélagsins skipta því gríðarlega miklu máli þannig að ég held að þetta sé mjög brýnt og auðvitað frábært að hæstv. ráðherra sé með áform um þetta og þau séu komin fram og auðvitað bara hlakka til. Ég held að það sé mjög brýnt og ítreka að við setjum okkur skýr lög og skýra ramma í kringum þessa nýtingu.