afmörkun á uppbyggingu vindorkuvera.
Virðulegi forseti. Mig langar til að taka undir með hv. þingmanni hversu brýnt þetta er og segja um leið: Við erum heppin. Við erum ótrúlega heppin sem þjóð að geta verið að takast á um jafnvægi í nýtingu og vernd sem er í raun og veru tvær auðlindir sem við erum að fást við, þessi ótrúlega náttúra og þessi græna orka sem allir öfunda okkur af. Þetta er því öfundsverð staða að hafa þennan höfuðverk sem við höfum yfir þessum málum.
Mig langar aðeins að koma inn á samkeppnismálin í samhengi við staðsetningu vindorkuvera. Það er stundum einhvern veginn ruglað í umræðunni að vegna samkeppnissjónarmiða þá sé allt landið undir. En það er þannig að hvert og eitt ríki getur auðvitað ákveðið hvaða landsvæði á að nýta í þessu samhengi þannig að það er sú vinna sem þarf að koma fram. Ég tek undir með hv. þingmanni að það er jákvætt að ráðherra málaflokksins sé að horfa á þetta og vonandi getum við unnið saman.
Ég ætla bara enda á því að segja varðandi eignarhaldið að ég held að það sé ótrúlega stór þáttur í því af hverju við erum ánægð með orkusöguna þrátt fyrir margt sem við erum ósátt með í henni og deilur um einstaka verkefni. Við erum stoltari og ánægðari af því að við eigum þessa auðlind saman. Af hverju ættum við að fara að taka einhverja stóra U-beygju hvað það varðar? Við þurfum alla vega að ræða það og vera samstiga um að fara þá einhverja nýja leið sem þjóð. Ég get ekki séð að sú umræða hafi átt sér stað hingað til.
Varðandi fjölbreyttara eignarhald þá vil ég líka segja: Það er auðvitað verið að úthluta þeim vatnsaflsleyfum ótímabundið. Heilt yfir er ég aldrei hlynnt því að við séum að úthluta gæðum Íslands til einkaaðila ótímabundið. Það á t.d. við um fiskeldi sem við eigum líka eftir að fjalla um hér.